Stólastúlkur í erfiðum málum í Bestu deildinni
	feykir.is
		
				Skagafjörður, Austur-Húnavatnssýsla, Íþróttir, Vestur-Húnavatnssýsla, Lokað efni	
		
					20.09.2025			
	
		kl. 19.16	
			
	
	
	
			
						Donni er ekki búinn að gefast upp og segir öll liðin í neðri hlutanum vera jöfn að stytkleika. SKJÁSKOT AF FÓTBOLTI.NET
					Lokaumferðin í hefðbundinni deildarkeppni í Bestu deild kvenna var spiluð í dag og það var sterkt lið FH sem kom á Krókinn þar sem lið Tindastóls beið þess. Hlutskipti liðanna er ólíkt; Stólastúlkur í bullandi fallbaráttu en lið FH að reyna að halda spennu í toppbaráttunni. Gæðamunurinn kom fljótt í ljós í leiknum og lið Hafnfirðinga vann öruggan 0-4 sigur.
						
								
