Stuðningur og hvatning til íbúa
Á heimasíðu Húnavatnshrepps kemur fram að hreppurinn gengst fyrir ýmis konar stuðningi og hvatningu til íbúa sinna. Er markmið hreppsnefndar að gefa fólki kost á ýmis konar þjónustu til að auðvelda því búsetu í hreppnum.
Hér fyrir neðan er listi yfir reglur um afslætti, styrki og fleira sem íbúar geta sótt til hreppsins.
Reglur um afslátt af fasteignaskatti í Húnavatnshreppi
1.gr.
Tekjulágum elli- og örorkulífeyrisþegum sem eiga lögheimili í Húnavatnshreppi er veittur afsláttur af fasteignaskatti, samkvæmt ákvörðun sveitarstjórnar ár hvert og reglum þessum, sbr. heimild í 4. mgr. 5. gr. laga nr. 4/1995 um tekjustofna sveitarfélaga.
2.gr.
Þeir aðilar sem uppfylla eftirfarandi skilyrði eiga rétt á afslætti á fasteignasköttum samkvæmt ákvörðun sveitarstjórnar:
a) Ellilífeyrisþegar 67 ára á álagningarárinu eða eldri, eða örorkulífeyrisþegar sem hafa verið úrskurðaðir 75% öryrkjar.
b) Þeir sem eru úrskurðaðir 75% öryrkjar á álagningarári eiga rétt á hlutfallslegri lækkun frá því að örorkumat tók gildi.
c) Viðkomandi búi í eigin húsnæði og hafi ekki af því leigutekjur.
Afsláttur nær einungis til þeirrar íbúðar sem viðkomandi býr í.
Heimilt er að víkja frá þessu ákvæði í allt að þrjú ár dvelji viðkomandi aðili á öldrunarstofnun og að íbúð í eigu hans sé ekki leigð út eða nýtt af skyldmennum.
d) Þegar um hjón eða sambúðaraðila er að ræða nægir að annað hjóna eða sambúðaraðila fullnægi því skilyrði að vera elli- eða örorkulífeyrisþegi.
3.gr.
Upplýsingar um tekjur vegna útreiknings er sóttar vélrænt á vef Ríkisskattstjóra í gegnum álagningarkerfi Fasteingaskrár Íslands. Ekki er þörf á sérstökum umsóknum vegna afsláttar.
4.gr.
Afsláttur af fasteignaskatti er tekjutengdur og er allt að kr. 65.000.- Afsláttur er hlutfallslegur að teknu tilliti til skattskyldra tekna, þ.m.t. eigna- og fjármagnstekna síðastliðins árs, samkvæmt skattframtali. Miðað er við sameiginlegar tekjur hjóna og samskattaðs sambýlisfólks.
5.gr.
Fullur afsláttur kr. 65.000,-
Einstaklingar með tekjur allt að kr. 2.203.929,-
Hjón/sambýlisfólk með tekjur allt að kr. 3.081.092,-
80% af fullum afslætti kr. 52.000,-
Einstaklingar með tekjur á bilinu kr. 2.203.929,- til kr. 2.530.110,-
Hjón/sambýlisfólk með tekjur á bilinu kr. 3.081.092,- til kr. 3.537.095,-
50% af fullum afslætti kr. 32.500,-
Einstaklingar með tekjur á bilinu kr. 2.530.110,- til kr. 3.058.902,-
Hjón/sambýlisfólk með tekjur á bilinu kr. 3.537.095,- til kr. 4.219.755,-
6. gr.
Reglur þessar voru samþykktar á fundi sveitarstjórnar Húnavatnshrepps þann 20. janúar 2009.
Jens P Jensen, sveitarstjóri Húnavatnshrepps.
Annað
1. Húnavatnshreppur greiðir námsstyrki til framhaldskólanema árið 2009.
· Greiddur er námsstyrkur til unglinga sem stunda nám í menntaskóla, fjölbrautarskóla eða sambærilegum menntastofnunum.
· Greiddar eru 55 þúsund krónur á hverja önn.
· Almennt skal miða við níu annir eftir grunnskóla að 24. aldursári.
· Greiðslur fari fram um miðjan apríl og miðjan nóvember.
· Nemendur þurfa að senda staðfestingu um að þeir stundi fullt nám í viðkomandi skóla til skrifstofu Húnavatnshrepps áður en greiðsla fer fram.
2. Heimaþjónusta verður greidd skv. samningi við Félagsþjónustu A-Hún
3. Ákveðið var að sveitarfélagið taki þátt í kostnaði við ristahlið á heimkeyrslur lögbýla í sveitarfélaginu kr. 100.000 á móti greiðslu héraðssjóðs.

