Styrkir vegna viðburða og verkefna í boði hjá Húnavatnshreppi
Húnavatnshreppur hefur ákveðið að gefa félagasamtökum, fyrirtækjum og einstaklingum tækifæri til að sækja um styrki vegna viðburða eða verkefna sem samræmast hlutverki sveitarfélagsins eða eru í samræmi við stefnu þess og áherslur vegna fjárhagsársins 2019.
Á heimasíðu sveitarfélagsins kemur fram að styrkir verði ekki veittir eftir á né feli styrkveiting fyrirheit um frekari skuldbindingu af hálfu sveitarfélagsins nema gerður sé sérstakur samningur þess efnis. Umsóknarfrestur er til 22. október.
Nánari upplýsingar er hægt að finna á Húnavatnshreppur.is