Sveitarfélagið Skagaströnd hlýtur Jafnlaunavottun
Sveitarfélagið Skagaströnd hefur hlotið jafnlaunavottun samkvæmt jafnlaunastaðlinum ÍST85 en sagt er frá þessu á vef Skagastrandar. Vottunin er staðfesting á því að jafnlaunakerfi sveitarfélagsins uppfylli kröfur Jafnlaunastaðalsins. Með jafnlaunavottuninni hefur Sveitarfélagið öðlast heimild Jafnréttisstofu að nota jafnlaunamerkið til næstu þriggja ára.
Jafnlaunavottunin er mikilvægur áfangi og gleðiefni að jafnlaunakerfi sveitarfélagsins hafi fengið jafnlaunavottun.
Fram kemur í fréttinni að mikill vilji og metnaður sé til staðar hjá sveitarfélaginu til þess að nýta jafnlaunakerfið til þess að gera vinnustaðinn enn betri fyrir starfsfólk. Jafnlaunakerfið er mikilvægt stjórntæki sem tryggir að málsmeðferð og ákvörðun í launamálum sé málefnaleg og feli ekki í sér kynbundna mismunun.