Sveitarstjórn Skagastrandar markar sér stefnu í úrgangsmálum

Skagaströnd.
Skagaströnd.

Á fundi sveitarstjórnar Skagastrandar, sl. miðvikudag, var tekin fyrir tillaga að stefnu sveitarstjórnar í úrgangsmálum. Lögð er aukin áhersla á endurnýtingu og endurvinnslu í takt við vilja íbúafundar þann 15. nóvember sl. Í stefnumörkun sem samþykkt var á fundinum segir m.a.:

„Sveitarstjórn styður þá meginstefnu sem mótuð hefur verið síðustu árin, að líta beri á allt efni sem auðlindir sem nauðsynlegt sé að nýta sem best. Í samræmi við það hefur verið litið á úrgangsmál sem málaflokk sem væri að þróast frá því að snúast um lausnir á úrgangsvanda yfir í umræðu um bætta auðlindanýtingu í anda hringrásarhagkerfisins.“

Vísað er í samþykkt framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins frá 2. desember 2015 um sérstakan „Hringrásarhagkerfispakka“ sem hefur það að markmiði að stuðla að framleiðslu og nýtingu umhverfisvænnar vöru, að draga úr myndun úrgangs, auka endurvinnslu og nýta orku og aðföng með sjálfbærum hætti. Í samþykktinni eru m.a. tillögur um breytta úrgangslöggjöf með sérstakri áherslu á að draga úr urðun og auka endurnotkun og endurvinnslu.

Meðal markmiða í tillögum hringrásarhagkerfisins um breytta úrgangslöggjöf er að árið 2030 verði:

Endurvinnsluhlutfall heimilisúrgangs 65%.
Endurvinnsluhlutfall umbúðaúrgangs 75%.
Að hámarki 10% heimilisúrgangs ráðstafað til urðunar.
Bann sett við urðun flokkaðs úrgangs.
Hagrænum hvötum beitt til að sporna gegn urðun.
Kerfi sem miða að endurheimt og endurvinnslu studd sérstaklega til að sinna hlutverki sínu.

Þá er m.a. lagt til að sú skylda verði lögð á aðildarríkin að auk pappírs, málma, plasts og glers verði lífrænum úrgangi safnað sérstaklega.

„Sveitarstjórn gerir ráð fyrir að þessar fyrirhuguðu breytingar verði innleiddar hér á landi á næstu árum í samræmi við EES-samninginn og því sé rétt, og verði innan fárra ára skylt, að hlíta þeim ákvæðum sem samþykktin og markmið hennar taka til,“ segir í fundargerð.

Til að ná þessum markmiðum þurfa, að því er segir í fundargerð, einstaklingar, heimili, fyrirtæki og opinberir aðilar að standa saman við vinnu að breyttum aðferðum og leiðum við meðhöndlun úrgangs. Í því skyni hyggst sveitarstjórn beita sér fyrir aukinni fræðslu um úrgangsmál og leggja áherslu á aukna flokkun og bætta meðferð alls úrgangs.

Fleiri fréttir