Sýklalyfjaónæmi í gæludýrum

Sýklalyfjaónæmar bakteríur greinast í gæludýrum á Íslandi og er ónæmi algengara í innfluttum dýrum. Algengi ESBL/AmpC myndandi E. coli í hundum og köttum er svipað og í kjúklingum, svínum og lömbum á Íslandi. Um er að ræða E. coli bakteríur sem bera með sér gen sem hafa þann eiginleika að mynda ónæmi gegn mikilvægum sýklalyfjum. Bakteríur sem bera þessi gen eru líklegri til að vera fjölónæmar.

Sýklalyfjaónæmi er ein stærsta ógn við lýðheilsu í heiminum í dag, segir á mast.is og hafa alþjóðastofnanir hvatt þjóðir heims til að efla rannsóknir sem nýta mætti til að stemma stigu við þessari ógn. Aukið ónæmi baktería fyrir sýklalyfjum veldur vandamálum við meðferð sýkinga og hefur þannig slæmar afleiðingar fyrir heilsu manna og dýra, auk þess sem það veldur auknum kostnaði við heilbrigðisþjónustu. Á vef Matvælastofnunar kemur fram að einnig hafi E. coli bendibakteríur verið rannsakaðar til að meta algengi ónæmis í viðkomandi dýrategund. Gæludýr eru jafnan í mikilli snertingu við eigendur sína og því líklegt að bakteríur berist þeirra á milli.

ESBL/AmpC myndandi E. coli greindist í 5,2% sýna sem voru tekin úr gæludýrum innanlands (5 af 97 sýnum). Fjórir stofnar reyndust fjölónæmir, þar af tveir mjög fjölónæmir eða fyrir 8 sýklalyfjaflokkum. E. coli bendibakteríur reyndust 10,4% (5 af 48 stofnum) ónæmar fyrir einu eða fleiri sýklalyfjum, enginn stofn var þó fjölónæmur . Bakteríur eru fjölónæmar ef þær eru ónæmar fyrir þremur eða fleiri sýklalyfjaflokkum.

Algengi ESBL/AmpC myndandi E. coli í innfluttum gæludýrum var nær helmingi hærra en í gæludýrum innanlands eða í 9,7% sýna sem voru tekin úr innfluttum gæludýrum í einangrunarstöð (7 af 72 sýnum).

Sjá nánar HÉR

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir