Sýning í Textíllistamiðstöðinni

Einn af listamönnum mánaðarins við vinnu sína. Mynd:FE
Einn af listamönnum mánaðarins við vinnu sína. Mynd:FE

Í dag kl. 15:30 verður opið hús í Textíllistamiðstöðinni á annarri hæð Kvennaskólans á Blönduósi þar sem haldin verður sýning á verkum þeirra listamanna sem þar hafa dvalið að undanförnu.

Textíllistamiðstöðin tekur á móti textíllistamönnum í hverjum mánuði og lýkur dvöl þeirra með sýningu á því sem þeir hafa unnið meðan á heimsókn þeirra stendur. Í dag verður haldin sýning á verkum listamanna febrúarmánaðar og eru allir velkomnir upp á aðra hæð Kvennaskólans þar sem stúdíó þeirra er.

Í auglýsingu frá Textíllistamiðstöðinni segir að óhætt sé að segja að eftir nokkurra ára móttöku listamanna geti verk þeirra enn komið á óvart og gaman sé að sjá að ekki hefur enn sést tvisvar það sama. Listamenn febrúarmánaðar eru:

Kelly Ruth, Kanada,
Meg Rodger, Skotlandi,
Aya Tsukui,  Japan/Bretlandi,
Marie van Praag, Belgíu,
Barbara Dinnage, Bretlandi,
Britta Fluevog, Eistlandi,
Hanna Larsson, Svíþjóð.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir