Sýning um íslensku lopapeysuna á Heimilisiðnaðarsafninu í sumar

Björg Baldursdóttir, kvæðakona, og Elín S. Sigurðardóttir, safnstjóri, við opnunina.            Aðsendar myndir.
Björg Baldursdóttir, kvæðakona, og Elín S. Sigurðardóttir, safnstjóri, við opnunina. Aðsendar myndir.

Sérsýning Heimilisiðnaðarsafnsins, íslenska lopapeysan, uppruni, saga, hönnun, varopnuð á uppstigningardag, þann 30. maí sl. Er hér um að ræða farandsýningu sem á rætur að rekja til rannsóknarverkefnis Heimilisiðnaðarsafnsins, Hönnunarsafns Íslands og Gljúfrasteins, húss skáldsins, sem Ásdís Jóelsdóttir, lektor við Háskóla Íslands, vann. Skýrslu um rannsóknina má finna á vefsíðum safnanna.

Í framhaldi af rannsókninni var ákveðið að hlutgera afraksturinn með farandsýningu sem hönnuð var af Auði Ösp Guðmundsdóttur og var sýningin fyrst opnuð í Hönnunarsafninu  í desember árið 2017. Um svipað leyti kom út bókin um íslensku lopapeysuna eftir Ásdísi Jóelsdóttur og byggir hún á fyrrnefndu rannsóknarverkefni.

Fyrri hluta árs 2018 var sýningin sett upp á Nord Atlandes Brygge í Kaupmannahöfn og fór hún þaðan til Odense. Auður Ösp setti svo sýninguna upp aftur í Heimilisiðnaðarsafninu.

Íslenska lopapeysan kom ekki fram á sjónarsviðið fyrr en á fimmta og sjötta áratug síðustu aldar. Ljóst er að engin ein prjónakona hannaði lopapeysuna, heldur hefur útlit og gerð hennar tengst mörgum áhrifaþáttum. Auður Laxness átti þó mikinn þátt í því að móta útlit peysunnar og kynna hana í gegnum tengslanet sitt.

Við opnunina fór Elín S. Sigurðardóttir, safnstjóri, nokkrum orðum um frumgerðir þriggja peysa sem allar eru varðveittar í safninu og voru í fyrstu

Upprunalegu peysurnar sem voru endurgerðar.

uppsetningu sýningarinnar. Peysurnar voru síðan endurgerðar áður en sýningin var send til Danmerkur. Sagði Elín að í heimildum um sjómannspeysuna, eða duggarapeysuna, úr safni Halldóru Bjarnadóttur komi fram að peysan hafi verið prjónuð árið 1920.  Halldóra segir einnig að á kreppuárunum hafi svona peysur verið handprjónaðar þúsundum saman, aðallega norðanlands en einnig á Vestfjörðum og seldar Veiðarfæraverslunum í Reykjavík og Akureyri. “Þótti góð atvinna að prjóna peysurnar og eftirsótt” segir Halldóra. Gömlu peysurnar liggja frammi á meðan sýningin verður í Heimilisiðnaðarsafninu.

Elín kvað samstarfsverkefnið hafa verið mjög árangursríkt og gott dæmi um góðan ávöxt af samstarfi ólíkra safna.

Í lokaorðum Elínar kom fram að þetta væri í sautjánda sinn sem opnuð væri sérsýning í safninu sem teljist merkilegt hjá ekki stærri stofnun. Hún minnti einnig á þann heiður og ábyrgð sem byggðarlaginu hefði hlotnast að eiga slíkt safn sem Heimilisiðnaðarsafnið, sem nyti daglegrar viðurkenningar gesta, fræða- og listafólks og augljósasta dæmi um þessa viðurkenningu væri stöðugur áhugi listafólks á að fá að halda sérsýningu í safninu.

Hluti gesta við opnunina.

Safnasjóður styrkti bæði rannsóknarvinnuna og farandsýninguna. Einnig fékkst styrkur frá Uppbyggingarsjóði Norðurlands vestra til sýningarinnar og segir Elín að sá styrkur hafi gert Heimilisiðnaðarsafninu kleift að taka þátt í verkefninu.

Björg Baldursdóttir frá Kvæðamannafélaginu Gná, kvað stemmur bæði í upphafi athafnar og í lokin og var gerður góður rómur að.

Ágæt aðsókn var við opnunina og þáðu gestir kaffi og kleinur og áttu notalega samverustund í kaffirými safnsins.

Sumarstarfsstúlkur safnsins eru þær Þórunn Erla Guðmundsdóttir og Elísabet Eir Óttarsdóttir. Safnið er til húsa að Árbraut 29 á Blönduósi og er opnunartími þess alla daga í júní, júlí og ágúst frá kl. 10:00 til 17:00.

 

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir