Tækifæri dreifðra byggða í fjórðu iðnbyltingunni

Fimmtudaginn 5. september standa landshlutasamtökin og Nýsköpunarmiðstöð fyrir málþingi um tækifæri dreifðra byggða í fjórðu iðnbyltingunni. Óhætt er að segja að þingið sé með nokkuð óhefðbundnu sniði þar sem það fer fram með sömu dagskrá á sex stöðum á landinu en verður jafnframt sent út á internetinu. Hægt verður að taka þátt með því að mæta á einhvern þessara sex staða sem eru Borgarnes, Ísafjörður, Sauðárkrókur, Akureyri, Reyðarfjörður og Selfoss eða tengjast netinu.

Á Norðurlandi vestra verður málþingið haldið í Farskólanum Faxatorgi. Hefst það kl. 9 og stendur til kl. 13.30. Skráning á málþingið fer fram hér: https://www.nmi.is/is/frumkvodlar/taekifaeri-dreifdra-byggda-5-september

Dagskrá málþingsins:

Kl. 09:00 Ávarp Þórdísar Kolbrúnar Gylfadóttir ferðamála, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra
Kl. 09:10 Fundarstjóri tekur við.
Kl. 09:15 Ragnheiður Magnúsdóttir, formaður tækninefndar Vísinda - og tækniráðs 
Kl. 09:35 David Wood, framtíðarfræðingur frá Bretlandi
Kl. 09:55 Stafrænt Ísland. Berglind Ragnarsdóttir verkefnastjóri.
Kl. 10:05 Nýsköpun og frumkvöðlastarf í brothættum byggðarlögum. Eva Pandóra Baldursdóttir verkefnastjóri
Kl. 10:15 Stutt kaffihlé
Kl. 10:30 Austurland. María Kristmundsdóttir Alcoa Fjarðarál
Kl. 10:40 Norðurland eystra. Garðar Már Birgisson – thula.is 
Kl. 10:50 Norðurland vestra. Álfhildur Leifsdóttir kennari í Ársskóla
Kl. 11:00 Suðurland. Eva Björk Harðardóttir oddviti Skaftárhrepps
Kl. 11:10 Vestfirðir. Arnar Sigurðsson Blábankastjóri.
Kl. 11:20 Vesturland. Sævar Freyr Þráinsson bæjarstjóri Akranes.
Kl. 11:30 Ávarp Sigurðar Inga Jóhannssonar samgöngu og sveitastjórnarráðherra

Kl. 11:40 Kaffi og vinnustofur

Kl. 12:30 Léttur hádegisverður
Kl. 13:00 - Fyrirspurnir og umræður
Kl. 13:30 - Málþingslok

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir