Tekjur sveitarfélaga dragast minna saman en áður var spáð

Starfshópur á vegum ríkis og sveitarfélaga áætlar að afkoma A hluta sveitarsjóða verði neikvæð sem nemur 17,7 milljörðum króna í ár. Það er um 2,2 milljörðum betri afkoma en starfshópurinn áætlaði í skýrslu í ágúst síðastliðnum þegar stefndi í 19,9 milljarða halla samkvæmt fyrirliggjandi gögnum. Benda nýjustu tölur til þess að samdráttur í tekjum verði minni en ráð var fyrir gert í sumar en heildargjöldi verði þau sömu. Þegar litið er til áætlana um skuldastöðu sveitarfélaganna þá er hún ögn skárri en nú en gert var ráð fyrir í fyrri áætlun og sama gildir um veltufé frá rekstri. Þetta kemur fram í frétt á vef samgöngu- og sveitarstjórnaráðuneytisins.

Þar segir ennfremur að starfshópurinn hafi verið settur á fót í framhaldi af samþykkt ríkisstjórnarinnar 28. apríl sl. Var verkefni hans annars vegar að safna upplýsingum um fjárhagsáætlanir og fjárhagsstöðu einstakra sveitarfélaga fyrir yfirstandandi ár og þróun þeirra og horfur og hins vegar að safna upplýsingum um einstaka þætti sem ljóst þykir að muni hafa mikil áhrif á afkomu sveitarfélaganna á komandi mánuðum og misserum. 

Starfshópurinn skilaði fyrri skýrslu til ráðherra 24. ágúst og komst hann að þeirri niðurstöðu að frávik frá fjárhagsætlunum ársins hvað A hluta sveitarsjóða varðar næmi um 26,6 milljörðum króna. Væri einnig tekið mið af áformum sveitarfélaga um fjárfestingar umfram gildandi áætlun væru frávikin 33,2 milljarðar, eða sem næmi 1,1% af vergri landsframleiðslu.

Í framhaldi af yfirlýsingu ríkisstjórnarinnar í tengslum við samkomulag ríkis og sveitarfélaga um opinber fjármál óskaði samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytið eftir því að starfshópurinn kæmi saman að nýju og myndi endurmeta fyrri áætlun sína með hliðsjón af þróun fjármála. Endurmat starfshópsins liggur nú fyrir og eins og áður sagði er áætlað að afkoman verði um 2,2, milljörðum betri en fyrri spá starfshópsins gerði ráð fyrir, sbr. tafla 1 hér að neðan. „Eftir sem áður er ljóst að neikvæð áhrif Covid-19 faraldursins á efnahagslífið og fjármál sveitarfélaga eru mikil,“ segir í skýrslunni.

Útkomuspár 2020 benda til minni fjárfestinga
Í samstarfi við samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytið aflaði starfshópurinn útkomuspám sveitarfélaganna, sem unnar voru eftir þriðja ársfjórðung og bárust spár frá 52 sveitarfélögum. Það gaf starfshópnum tækifæri til að bera saman upphaflegar fjárhagsáætlanir, niðurstöður spálíkansins í ágúst og núverandi niðurstöður spálíkansins við útkomuspár sveitarfélaganna, sbr. tafla 2 hér að neðan. 

Sá samanburður leiðir í ljós óveruleg frá vik hvað varðar spár um tekjur og gjöld, skuldir og veltufé. Hins vegar bendir samanburðurinn til þess að fjárfestingar sveitarfélaganna verði nokkru minni en spálíkanið gerði ráð fyrir og munar þar rúmum 6 milljörðum kr.. „Þannig er ljóst að fjárfestingar ársins verða minni en sveitarfélögin höfðu áformað á árinu en hluti þeirra mun flytjast fram á næsta ár,“ segir í niðurstöðum starfshópsins

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir