Tendruð ljós á jólatré á Blönduósi
Ljósin verða tendruð á jólatrénu við Blönduósskirkju í dag klukkan 17:00. Tréð sem reist hefur verið við kirkjuna er fengið í Gunnfríðarstaðaskógi hjá Skógræktarfélagi Austur – Húnvetninga og er það hið glæsilegasta á að líta.
Á tilkynningu á vef Blönduóssbæjar segir að sungin verði jólalög og fregnir hermi að jólasveinar verði komnir á stjá.....