Þorrablót á Vallabóli
feykir.is
Austur-Húnavatnssýsla
03.02.2010
kl. 09.24
Á leikskólanum Vallabóli í Húnavatnshreppi var þorrinn blótaður fyrir helgi af gömlum og góðum sið. Fengu krakkarnir þjóðlegan og góðan mat í hádeginu.
Á heimasíðu leikskólans er sagt frá því að boðið var upp á súrmat, hangikjöt, harðfisk, hákarl og ýmislegt fleira í hádeginu. Svo var þorraþrællinn sunginn, dansað og tjúttað eins og venjan er á þorrablótum.
