Þriggja ára fangelsi fyrir nauðgun
Karlmaður á sjötugsaldri hefur verið dæmdur í þriggja ára fangelsi fyrir að nauðga konu á heimili sínu á Skagaströnd í ágústmánuði á síðasta ári.
Í dómi Héraðsdóms Norðurlands vestra, kemur fram að þau hafi unnið saman og að hann hafi veist að henni með ofbeldi og haft við hana samræði gegn vilja hennar. Maðurinn neitaði sök og bar fyrir sig minnisleysi vegna ölvunar.
/ruv.is