Þrír starfsmenn Alþingis smitaðir og í einangrun

Viðbragðsteymi Alþingis greindi frá því í dag að niðurstaða úr skimun hafi leitt í ljós að tveir starfsmenn skrifstofunnar bættust í hóp þeirra sem væru smitaður af kóróna-veirunni. Áður hafði verið greint frá því að einn starfsmaður stofnunarinnar væri smitaður. Í tilkynningu frá skrifstofu Alþingis kemur fram að þeir þessir tveir starfsmenn voru komnir í sóttkví vegna samskipta við þann sem smitaðist fyrst, en starfsmennirnir þrír hafa starfsstöð í sama húsi, Skúlahúsi, við Kirkjustræti.

„Smitun er eftir því sem best er vitað eingöngu bundin við það hús. Annað starfsfólk hefur ekki verið sett í sóttkví af smitrakningarteymi Almannavarna í framhaldi af þessu smiti. Þeim sem hafa verið í samskiptum við starfsmennina hefur verið greint frá stöðunni. Enn eru tveir starfsmenn skrifstofunnar í fyrirskipaðri sóttkví eftir að hafa verið í samskiptum við smitaða einstaklinga utan Alþingis, en báðir þessir starfsmenn eru þó frískir,“ segir í tilkynningunni en nokkrir þingmenn og starfsfólk eru í sjálfskipaðri sóttkví eða smitvari vegna aðstæðna, ýmist af persónulegum heilsufarsástæðum eða einhvers nákomins.

Ennfremur kemur fram að þegar þörf er á fundum í fastanefndum eða þingflokkum verður áhersla lögð á að fundirnir verði sem mest haldnir með fjarfundabúnaði og lögð er áhersla á að starfsfólk í einstökum einingum skiptist á að vinna heima til að reyna að fyrirbyggja að heil starfseining lamist algjörlega. Allir fundir starfsfólks fara fram með fjarfundabúnaði.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir