Til styrktar Guðjóni Óla
Fjölskylduskemmtun verður haldin í Félagsheimilinu á Blönduósi 10. nóvember nk. frá kl. 15:00-17:30 Meðal þeirra sem koma fram má nefna Ingó veðurguð, Gísla Einarsson úr Landanum auk tónlistarfólks úr Húnavatnssýslu. Treyjuuppboð verður á staðnum m.a. árituð treyja Gylfa Þórs Sigurðssonar hjá Tottenham, árituð treyja frá Aroni Pálmasyni handboltamanni í Kiel og Íslandsmeistaratreyja FH í knattspyrnu með áritun allra leikmanna liðsins og margar margar fleiri.
Þá verður boðið uppá kökuhlaðborð þannig að enginn þarf að fara svangur heim. Skemmtunin er haldin til að sýna samstöðu í verki með Guðjóni Óla og fjölskyldu hans en hann veiktist alvarlega fyrr á þessu ári aðeins nokkura vikna gamall. Allur ágóði af þessari skemmtun rennur því óskertur til fjölskyldu hans.
Miðaverð er aðeins kr 2.000 fyrir fullorðna (16 ára og eldri) og frítt fyrir börn í fylgd með fullorðnum. Forsala aðgöngumiða fer fram í íþróttamiðstöðinni á Blönduósi og í íþróttahúsinu á Skagaströnd miðvikudaginn 7. nóvember frá kl. 16:00-18:00. Einnig er hægt að gera miðapantanir á netfangið eysteinnp@simnet.is frá og með kl. 16:00 þennan sama dag.
Þá hefur verið opnaður bankareikningur í tilefni fjölskylduskemmtunarinnar og geta þeir sem ekki komast en vilja sýna stuðning lagt inná eftirfarandi reikning: 0307-13-2012 kt. 110280-4249. Gerum okkur glaðan dag saman og vonandi sjáum við sem flesta. Ungmennafélagið Hvöt ásamt vinum og ættingjum!
