Tjón á tveimur bæjum í Húnaþingi

Vindmynd af heimasíðunni Windy.com frá því um 19:30 í kvöld.
Vindmynd af heimasíðunni Windy.com frá því um 19:30 í kvöld.

Húni.is segir frá því að töluvert tjón hafi orðið í óveðri dagsins á tveimur bæjum í Vatnsdal og Víðidal. Í fréttinni segir að Stefán Vagn Stefánsson, yfirlögregluþjónn á Norðurlandi vestra hafi í viðtali við Ríkisútvarpið í hádeginu greint frá því að mikið tjón hafi orðið í Vatnsdal þar sem útihús, vélar og íbúðarhús hafi skemmst. Gekk viðbragðsaðilum illa að komast á vettvang vegna veðurs. 

Í frétt á RÚV segir að allar rúður á austurhlið hússins hafi sprungið en brotnuðu ekki og að íbúar hússins hafi haldið til á þeim stað í húsinu sem öruggastur þótti. Þá var sagt frá því að stór hluti þaks á fjárhúsi á bæ í Víðidal hafi fokið. 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir