Tuttugu verkefni í gangi í Ræsingu á Norðurlandi vestra

Nýsköpunarmiðstöð Íslands, í samvinnu við sveitarfélög á Norðurlandi vestra, efndi í upphafi ársins til samkeppni um góðar viðskiptahugmyndir. Verkefnið ber nafnið Ræsing og var einstaklingum, hópum og fyrirtækjum boðið að sækja um þátttöku í verkefninu. Verkefnið er nú hálfnað og eru átta verkefni í gangi í Skagafirði og tólf í Húnavatnssýslum. Sagt er frá þessu á vef SSNV í dag. 

Verkefnið gengur út á það að þátttakendur fá 10-12 vikur til að vinna viðskiptaáætlun fyrir verkefnin sín en á þeim tíma fá aðstandendur verkefnanna fræðslu og mikinn stuðning frá verkefnisstjóra Nýsköpunarmiðstöðvar og fleiri aðilum við gerð viðskiptaáætlunarinnar og hugsanlega við vöruþróun og frumgerðasmíði. 

Þrjár milljónir eru settar í þróunarpott sem ætlað er að standa straum af verðlaunum og hugsanlegum kostnaði við gerð viðskiptaáætlananna. Sigurvegari hlýtur allt að eina milljón króna í verðlaun. Til að eiga kost á verðlaunum þarf verkefnið að hafa heildstæða viðskiptaáætlun en dómnefnd getur úrskurðað að engin viðskiptaáætlun hljóti fyrsta sætið eða að fyrstu verðlaunin deilist á fleiri þátttakendur.

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir