Tveir bílar enduðu utan vegar
feykir.is
Austur-Húnavatnssýsla
04.01.2012
kl. 08.35
Tveir bílar enduðu utan vegar í umdæmi lögreglunnar á Blönduósi á mánudag. Mikil umferð var í suðurátt var í allan daginn og hálka mikil á vegum.
Á vef Ríkisútvarpsins segir að annar bíllinn fór út af í Langadal en hinn sunnan við Blönduós. Engin meiðsl urðu á fólki við óhöppin.
