Umferðarslys í Langadal í gærkvöldi

Lögreglan á Norðurlandi vestra greindi frá því í gærkvöldi að þjóðvegi 1 um Langadal hafi verið lokað vegna umferðarslyss sem þar varð. 

Töluverður viðbúnaður var vegna slyssins en bifreið með fjóra manns innanborðs hafði oltið.

,,Aðilarnir sem um er rætt voru allir fluttir með sjúkrabifreiðum til Akureyrar en ekki er talið að þeir séu eins alvarlega slasaðir og talið var í fyrstu. Rannsókn á tildrögum slyssins er fram haldið," segir í tilkynningu frá lögreglunni. 

Vegurinn var opnaður eftir að vinnu á vettvangi lauk, rúmum klukkutíma eftir að tilkynning fyrst barst um lokunina. 

 

/SMH

Fleiri fréttir