Úthlutun 630 milljóna króna til að efla geðheilbrigðisþjónustu á landvísu

Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra - mynd: Heilbrigðisráðuneytið.
Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra - mynd: Heilbrigðisráðuneytið.

Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra hefur kunngert hvernig 630 milljónum króna af fjárlögum ársins verði ráðstafað til að efla geðheilbrigðisþjónustu á landsvísu. Fénu verður varið til að fjölga stöðugildum sálfræðinga í heilsugæslu annars vegar og til að efla og byggja upp  geðheilsuteymi um allt land.

Heilbrigðisráðuneytið í samvinnu við Þróunarmiðstöð íslenskrar heilsugæslu, Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins og Heilbrigðisstofnun Austurlands stóðu saman að fréttamannafundi í gær þar sem greint var frá úthlutun fjárins og fjallað um eðli þjónustunnar sem  um ræðir, þ.e. verkefni sálfræðinga í heilsugæslunni og hlutverk geðheilsuteymanna. Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra hóf fundinn og talaði almennt um nauðsyn þess að landsmenn eigi allir greiðan og góðan aðgang að heilbrigðisþjónustu, hvort sem vandamálin eru af líkamlegum eða geðrænum toga. Snemmtæk íhlutun sé grundvallaratriði og forvarnir eigi að skipa ríkan sess. Sú uppbygging geðheilbrigðisþjónustu á landsvísu sem nú eigi sér stað stórauki möguleikann á því að veita fólki þessa mikilvægu þjónustu í heimabyggð.

Á heimasíðu heilbrigðisráðuneytisins kemur fram að hlutverk heilsugæslunnar sé að veita fyrsta stigs heilbrigðisþjónustu og því þarf hún að vera í stakk búin til að takast á við þau heilbrigðisvandamál fólks sem algengust eru, hvort sem þau  vandamál eru af líkamlegum eða geðrænum toga. Uppbygging sálfræðiþjónustu innan heilsugæslunnar er liður í því að efla heilsugæsluna hvað þetta varðar. Þannig á fólk að geta fengið meðferð og stuðning vegna algengustu geðraskana, svo sem þunglyndis og kvíðaraskana í heilsugæslunni.

Við ákvörðun um skiptingu fjárins milli heilbrigðisumdæma var tekið mið af áætlunum heilbrigðisstofnana um uppbyggingu og eflingu geðheilsuteyma, íbúafjölda í viðkomandi heilbrigðisumdæmum. Geðheilsuteymin eru hugsuð sem annars stigs heilbrigðisþjónusta og þjónusta þeirra er veitt á grundvelli tilvísana. Þar er mætt vanda fólks þegar hann er flóknari en svo að hægt sé að mæta honum innan heilsugæslunnar.

Skipulag og uppbygging geðheilsuteyma á landsbyggðinni er komin mislangt á veg en undirbúningur hafinn í öllum heilbrigðisumdæmum og vísir að teymum kominn á Austurlandi og Suðurnesjum. Með þeirri fjárveitingu sem hér er kynnt og í samræmi við geðheilbrigðisáætlun er áformað að geðheilsuteymi verði tekin til starfa í öllum heilbrigðisumdæmum fyrir lok þessa árs.

Úthlutun fjárins milli heilbrigðisumdæma er sem hér segir:

Sálfræðingar á höfuðborgarsvæði 45,0
Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins 322,0
Heilbrigðisstofnun Vesturlands 46,0
Heilbrigðisstofnun Vestfjarða 21,0
Heilbrigðisstofnun Norðurlands 50,0
Heilbrigðisstofnun Austurlands 35,0
Heilbrigðisstofnun Suðurlands 58,0
Heilbrigðisstofnun Suðurnesja 53,0

Samtals 630,0

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir