Úthlutun úr Fjarskiptasjóði vegna ljósleiðaravæðingar

Sveitarfélög sem tóku þátt í forvali Fjarskiptasjóðs vegna átaksverkefnisins Ísland ljóstengt hafa fengið tilboð um samtals 450 milljón króna styrki vegna ársins 2019, ásamt vilyrði um frekari styrki vegna áranna 2020 og 2021 eftir atvikum, með fyrirvara um fjárlög. Fjórtán sveitarfélög eiga nú jafnframt kost á sérstökum byggðastyrk, samtals 150 milljónum króna og fá Húnaþing vestra og Sveitarfélagið Skagafjörður tíu milljónir hvort í sinn hlut.

Úthlutun Fjarskiptasjóðs
Á vef samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytisins kemur frama að Fjarskiptasjóður hafi auglýst forval í nóvember síðastliðnum vegna átaksverkefnisins Ísland ljóstengt fyrir árið 2019. Verkefnið er eitt af lykilverkefnum í stjórnarsáttmála og byggðaáætlun stjórnvalda. Markmið þess er að byggja upp ljósleiðarakerfi utan markaðssvæða í dreifbýli um allt land.

Sveitarfélög sem taka þátt í verkefninu eiga kost á 80% af þeirri upphæð sem þau hafa tilgreint sem æskilega framlag fjarskiptasjóðs fyrir tiltekna verkáfanga að frádregnu öðru framlagi, þó aldrei meira en svo að styrkir frá ríkinu greiði fyrir meira en 60% af raunkostnaði, að frádregnum 500.000 kr. án vsk. fyrir hvern styrkhæfan stað.

Fram kemur í frétt ráðuneytisins að sveitarfélög fá tíma til að ákveða hvort þau vilji ganga að tilboði sjóðsins um styrk. Endanlegar styrkupphæðir liggja því ekki fyrir að svo komnu en lokafrestur til að þiggja tilboð sjóðsins er til kl. 12:00, föstudaginn 8. mars nk.

Fjórtán sveitarfélög fá byggðastyrki
Samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytið hefur jafnframt ákveðið úthlutun sérstakra byggðastyrkja til valinna sveitarfélaga í tengslum við áform þeirra um ljósleiðarauppbyggingu. Áður hefur ráðuneytið þegar veitt samtals 200 m.kr. í byggðastyrki árin 2017 og 2018. Við skiptingu byggðastyrkja var horft til meðalkostnaðar fyrir hvern stað, þéttleika byggðar, meðalfjarlægð frá þjónustukjarna, hlutfall 4G tenginga, fjárhagsstöðu og meðaltekjur. Hámarksstyrkur til sveitarfélags var ákveðinn 20 m.kr.

Að þessu sinni stendur eftirfarandi sveitarfélögum til boða samningar um samtals 150 m.kr. í sérstaka byggðastyrki (100 m.kr. 2019 og 50 m.kr. 2020) sem skiptast þannig í m.kr:

Bláskógabyggð - 14 m.kr.
Borgarbyggð - 20 m.kr.
Dalabyggð - 12 m.kr.
Fjarðabyggð - 13 m.kr.

Fljótsdalshérað - 20 m.kr.
Sveitarfélagið Hornafjörður - 17 m.kr.
Húnaþing vestra - 10 m.kr.
Ísafjarðarbær - 10 m.kr.

Langanesbyggð - 6 m.kr.
Skaftárhreppur - 8 m.kr.
Sveitarfélagið Skagafjörður - 10 m.kr.
Strandabyggð - 2 m.kr.

Súðavíkurhreppur - 3 m.kr.
Vesturbyggð - 5 m.kr.

Sjá nánar HÉR

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir