Vænir dilkar í páskaslátrun

Um 300 fjár var slátrað í svokallaðri páskaslátrun sem fram fór í gær hjá SAH Afurðum á Blönduósi. Samkvæmt vef fyrirtækisins var flokkun góð og dilkar ágætlega vænir.

Í dag verður svo haldinn aðalfundur SAH Afurða ehf. og SAH svf. í starfsmannahúsi félagsins að Húnabraut 37, og hefst hann kl. 13:30. Dagskrá er samkvæmt samþykktum félaganna.

Fleiri fréttir