Vatnsdalsvegi lokað vegna vatnavaxta
Í tilkynningu á vef Vegagerðarinnar kemur fram að Vatnsdalsvegi hefur verið lokað við bæinn Hjallaland vegna vatnavaxta. Á vefnum kemur fram að skemmdir vegna vatnavaxta séu allvíða, ekki síst á Vestfjörðum og Vesturlandi.
Á vef Veðurstofu Íslands, vedur.is, segir að í dag verði suðaustan átt, 5-13 m/sek sunnan- og vestanlands, en annars breytileg átt, 3-8 m/sek. Rigning verður í flestum landshlutum en dregur úr úrkomu er líður á daginn, fyrst sunnan- og austantil.
Í landshlutaspá fyrir Strandir og Norðurland vestra er spáð norðaustan og austan 8-13 m/sek á annesjum í dag en annars hægari suðlægri eða breytileg ri átt. Í dag verður rigning en draga á úr úrkomu seinnipartinn í innsveitum og í kvöld verður úrkomulítið. Skýjað að mestu á morgun en þurrt að kalla og þokuloft við ströndina. Hiti verður 7 til 13 stig en heldur hlýnandi á morgun.
Reiknað er með mildu veðri fram eftir næstu viku.
Uppfært: Vegurinn var opnaður aftur um klukkan 11 skv. vef Vegagerðarinnar.
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.
Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.
Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.