veðurspá næstu daga
feykir.is
Skagafjörður, Austur-Húnavatnssýsla, Vestur-Húnavatnssýsla
18.06.2010
kl. 08.47
Spáin fyrir helgina gerir ráð fyrir fremur hægri suðlægri átt, skýjað með köflum eða bjartviðri.
Hiti 12 til 22 stig í dag, hlýjast inn til landsins, en heldur svalara á morgun.
það er því alveg tilvalið að drífa sig í útilegu, sinna viðhaldi á húsinu eða nýta helgina í að vinna í garðinum.
/vedur.is
Fleiri fréttir
-
Hver verður sýslumaður Íslands?
feykir.is Skagafjörður, Austur-Húnavatnssýsla, Vestur-Húnavatnssýsla 27.04.2026 kl. 08.04 oli@feykir.isSjö sóttu um nýtt embætti sýslumanns Íslands sem verður stofnað í byrjun árs 2027. Meðal umsækjenda eru tveir sýslumenn og fyrrverandi lögreglustjóri en þetta kemur fram í frétt á vef Stjórnarráðsins. Embættið var auglýst laust til umsóknar 27. mars og var umsóknarfrestur til 14. apríl en var síðan framlengdur til 21. apríl.Meira -
Ómálefnaleg veiðiráðgjöf á hvölum | Sigurjón Þórðarson skrifar
feykir.is Skagafjörður, Austur-Húnavatnssýsla, Aðsendar greinar, Vestur-Húnavatnssýsla 26.04.2026 kl. 17.59 oli@feykir.isNýlega birtist veiðiráðgjöf Hafró á hrefnu og langreyð en það var búið að dragast að gefa hana út sem er illskiljanlegt þar sem hún byggir á gögnum frá árinu 2024. Í stuttu máli þá felur veiðiráðgjöfin fyrir árið 2026 það í sér að ráðlegt er að draga verulega úr veiðum á bæði hrefnu og langreyð.Meira -
Metfjöldi þátttakenda í gæðingakeppni LM2026
Landssamband hestamannafélaga hefur tekið út félagafjölda hvers hestamannafélags og koma niðurstöður fram í töflunni hér fyrir neðan, og þá jafnframt hversu marga keppendur hvert félag hefur rétt á að senda í hvern flokk gæðingakeppninnar á landsmótinu að Hólum í sumar.Meira -
Hnetusteik og grafnar rjúpnabringur | Matgæðingur Feykis
Matgæðingar vikunnar í tbl 2 voru hjónin Helga Harðardóttir og Sveinn Sverrisson en þau hafa búið saman á Króknum í rúm 30 ár. Helga starfar sem sérfræðingur á þróunarsviði Byggðastofnunar og Sveinn starfar sem sjúkraþjálfari á HSN. Þau eiga tvær uppkomnar dætur, Vigdísi og Elínu, sem eru búsettar í Köben um þessar mundir.Meira -
Körfuboltaguðirnir hljóta að vera geggjaðir
Þeir voru heldur betur kaldrifjaðir körfuboltaguðirnir í gærkvöldi þegar Stjarnan og Tindastóll mættust í Garðabænum í öðrum leik liðanna í undanúrslitum Bónus deildarinnar. Heimamenn áttu ekkert erindi í að vinna þennan leik en það var nú samt akkúrat það sem þeir gerðu; örlögin og dómararnir búnir að reita af þeim margar helstu skrautfjaðrirnar og lá við að Gvendur á Eyrinni væri sjanghæjaður inn í ÞG Verk höllina í Garðabænum til að spila lokamínúturnar í þessum klikaða körfuboltaleik. En í sigurinn náði Stjarnan á seiglunni einni saman að því er virtist og lokatölur 105-103 eftir framlengdan leik.Meira
