Vel á annan tug safna og setra hluti af ferðaþjónustu svæðisins
Vinnustofa um markaðs- og kynningarmál fyrir söfn, setur og sýningar var haldin sl. mánudag í efri sal Ömmukaffis á Blönduósi. Guðrún Helga Stefánsdóttir kynningar- og markaðsstjóri Borgarsögusafns Reykjavíkur stýrði vinnustofunni og hafði aðalframsögu auk þess sem Björn H. Reynisson frá Markaðsstofu Norðurlands greindi frá þeim möguleikum í samvinnu safna og setra, sem markaðsstofan telur að geti verið fýsilegir.
Á vef SSNV segir að á fundinum hafi komið fram eindreginn áhugi á að þétta raðirnar og auka samskipti þeirra, sem eru í forsvari fyrir söfn og setur svæðisins en nú eru vel á annan tug safna og setra á Norðurlandi vestra hluti af ferðaþjónustunni á svæðinu.
Vinnustofan var hluti af Áhersluverkefni sóknaráætlunar 2018-2019 og var henni ætlað að stuðla að styrkingu gæða og þjónustuinnviða í ferðaþjónustu.
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.
Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.
Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.