Vel gengur með sundlaugarbyggingu á Blönduósi

 Sundlaugin á Blönduósi snemma í sumar

Bygging sundlaugar á Blönduósi gengur vel en verið er að ljúka við einangrun útveggja á uppsteyptum byggingum.

 

Hafist verður handa við klæðningar utan á veggi á næstu dögum. Þá er byggingu burðarvirkis á líkamsræktarsalnum langt komin og verið er að loka þakinu þar yfir.

 

Flísarnar á sundlaugina eru komnar og mun vinna við þær hefjast innan skamms, eins og segir í fundargerð framkvæmdahópsins en hann kom saman í síðustu viku og gerði grein fyrir stöðu mála.

Fleiri fréttir