Víða skafrenningur og hálka

Norðaustan 10-18 m/s og él, en norðan 8-15 eftir hádegi, á spásvæði Stranda og Norðurlands vestra. Hvassast úti við sjóinn, segir á vedur.is.
Norðaustan 10-18 m/s og él, en norðan 8-15 eftir hádegi, á spásvæði Stranda og Norðurlands vestra. Hvassast úti við sjóinn, segir á vedur.is.

Víða er hálka, hálkublettir eða snjóþekja á Norðurlandi og segir á vef Vegagerðarinnar að þæfingur sé utan Hofsóss og milli Akureyrar og Dalvíkur. Ófært er um Almenninga á Siglufjarðarvegi og um Dalsmynni. Siglufjarðarvegur og Ólafsfjarðarmúli eru lokaðir vegna snjóflóðahættu en staðan verður tekin í birtingu. Veginum um Víkurskarð hefur verið lokað vegna veðurs.

Á Vesturlandi er snjóþekja, hálka eða hálkublettir víðast hvar á vegum og skafrenningur nokkuð víða. Hálkublettir eða hálka eru á flestum leiðum Suðvestanlands en greiðfært er á Reykjanesbraut. Skafrenningur er á Sandskeiði og á Kjalarnesi, eftir því sem kemur fram aá vegagerdin.is.

Veðurstofan segir um Strandir og Norðurland vestra: Norðaustan 10-18 m/s og él, en norðan 8-15 eftir hádegi, hvassast úti við sjóinn. Hægari og úrkomuminna annað kvöld. Frost 0 til 7 stig. 

Veðurhorfur á landinu næstu daga

Á þriðjudag:
Austlæg átt, 8-15 m/s og skýjað með köflum, en 15-23 með S-ströndinni þegar líður á daginn og stöku él syðst. Hiti 0 til 5 stig syðra, en frost annars 1 til 6 stig. 

Á miðvikudag:
Gengur í austanstorm með talsverðri rigningu eða slyddu, en snjókomu til fjalla. Lengst af úrkomulítið fyrir norðan. Dregur talsvert úr vindi og úrkomu þegar líður á daginn. Heldur hlýnandi veður.

Á fimmtudag og föstudag:
Allhvöss eða hvöss sunnanátt með rigningu, en þurrt að kalla fyrir norðan. Fremur hlýtt í veðri.

Á laugardag:
Útlit fyrir að lægi og kólni með slyddu eða snjókomu A-lands, en annars þurrt að kalla.

Á sunnudag:
Útlit fyrir hæga vinda og bjartviðri, en vaxandi suðaustanátt með rigningu eða slyddu SV-til um kvöldið.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir