Viðurkenningar veittar fyrir framúrskarandi verkefni á Norðurlandi vestra

Þórhildur M. Jónsdóttir, verkefnisstjóri Vörusmiðju BioPol, og Auðbjörg Ósk Guðjónsdóttir, starfsmaður sölubílsins. Myndir:ssnv.is
Þórhildur M. Jónsdóttir, verkefnisstjóri Vörusmiðju BioPol, og Auðbjörg Ósk Guðjónsdóttir, starfsmaður sölubílsins. Myndir:ssnv.is

Árlega velja Samtök sveitarfélaga á Norðurlandi vestra framúrskarandi verkefni á sviði menningarmála annars vegar og atvinnuþróunar og nýsköpunar hins vegar. Verkefnin sem hljóta viðurkenningarnar að þessu sinni eru Hvammstangi International Puppetry festival og Sölubíll smáframleiðenda á Norðurlandi vestra.

Á vef SSNV segir að fjölmargar tilnefningar hafi borist en kallað var eftir tilnefningum meðal íbúa landshlutans. Stjórn SSNV ákvað á fundi sínum þann 12. janúar 2021 að veita eftirfarandi verkefnum viðurkenningar:

Á sviði atvinnuþróunar og nýsköpunar fékk Vörusmiðja Biopol viðurkenningu fyrir verkenfið Sölubíl smáframleiðenda á Norðurlandi vestra. Í umsögn um verkefnið á vef SSNV segir að verkefnið sé allt í senn, sameiningarafl fyrir smáframleiðendur, aukin þjónusta við viðskiptavini þeirra og nýstárleg og góð lausn á markaðssetningu og sölu afurða beint frá býli. Verkefnið styður við smáframleiðendur á því sviði þar sem þekkingu þeirra margra skortir og er í takt við markmið Sóknaráætlunar landshlutans um aukið virði afurða sem og sölu vara beint frá býli. Sölubíllinn hefur vakið jákvæða og verðskuldaða athygli á svæðinu sem er eitt mesta matvælahérað landsins og er mikilvægur þáttur í áframhaldandi atvinnuþróun og uppbyggingu þess.

Á sviði menningarmála hlaut viðurkenninguna Handbendi brúðuleikhús fyrir brúðulistahátíðina Hvammstangi International Puppetry Festival. „Frá stofnun hefur brúðuleikhúsið Handbendi vakið jákvæða athygli á landshlutanum fyrir metnaðarfull og vönduð menningarverkefni sem farið hafa víða, innanlands sem utan. Brúðulistahátíðin sem haldin var í fyrsta skipti í október 2020 var þar engin undantekning. Að halda alþjóðlega brúðulistahátíð á Norðurlandi vestra hefði alltaf verið ærið verkefni en að gera það á glæstan hátt í heimsfaraldri er listrænt og framkvæmdarlegt afrek. Verkefnið er listamönnum í landshlutanum hvatning til að láta ekkert stoppa sig í að hrinda hugmyndum sínum í framkvæmd og er brúðuleikhúsið Handbendi mikilvægur þáttur í menningarlífi landshlutans," segir íumsögn á vef SSNV.

Meðfylgjandi myndir eru teknar við afhendingu viðrkenninganna.

Að ofan: Þórhildur M. Jónsdóttir og Auðbjörg Ósk Guðjónsdóttir tóku við viðurkenningunni fyrir hönd Sölubíls smáframleiðenda. Þórhildur er verkefnisstjóri Vörusmiðju Biopol sem er vottað vinnslurými fyrir smáframleiðendur og Auðbjörg er starfsmaður Sölubílsins og hefur farið um Norðurland vestra og selt framleiðslu smáframleiðenda í honum. Nánari upplýsingar um Vörusmiðjuna og Sölubílinn er að finna hér: https://vorusmidja.is/

Að neðan: Greta Clough, listrænn stjórnandi Handbendi brúðuleikhúss, tók við viðurkenningu fyrir hönd Handbendis en Greta er stofnandi leikhússins sem staðsett er á Hvammstanga. Nánari upplýsingar er að finna hér: https://www.handbendi.com/ og um brúðulistahátíðina hér: https://www.thehipfest.com/index.html

Greta Clough.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir