Viggó Jónsson nýr formaður Markaðsstofu Norðurlands
Ný stjórn Markaðsstofu Norðurlands var kosin á aðalfundi, sem haldinn var þann 26. maí síðastliðinn og segir á heimasíðu hennar að aðalfundurinn hafi verið óvenjulegur, eins og svo margir fundir þetta misserið, en í fyrsta sinn var hann haldinn sem fjarfundur.
„Fundarstörf gengu vel fyrir sig og með því að smella HÉR má sjá glærukynningu framkvæmdastjóra.
Venju samkvæmt var kosið í lausar stöður í stjórn MN. Hlutskörpust urðu þau Viggó Jónsson frá Drangeyjarferðum, Örn Arnarson, eigandi Hótel Laugarbakka, Heba Finnsdóttir, eigandi veitingastaðanna Bryggjunnar og Striksins og Sigrún Hulda Sigmundsdóttir, hótelstjóri Icelandair hótel Akureyri og koma þau því inn í stjórn ýmist til eins árs eða tveggja. Þá voru þau Þórdís Bjarnadóttir frá Höldur og Tómas Árdal frá Arctic Hotels áfram kjörin varamenn í stjórn,“ segir í frétt á northiceland.is.
Ný stjórn hittist svo á sínum fyrsta fundi í gær, föstudag, og venju samkvæmt hófst fundurinn á því að formaður var kjörinn og var Viggó Jónsson fyrir valinu.
Sjá nánar HÉR
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.
Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.
Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.