Viltu gerast stofnfélagi í Sturlufélagi?

Í maímánuði var stofnað Sturlufélag, það er félag til að halda á lofti minningum um verk sagnaritarans mikla Sturlu Þórðarsonar. Enn er hægt að gerst stofnfélagi þar sem ákveðið var að svo yrðu þeir sem gerast félagar til áramóta.

Í samþykktum Sturlufélagsins segir:
„Tilgangur félagsins er að halda á lofti nafni Sturlu Þórðarsonar sagnaritara á Staðarhóli og að heiðra á allan hátt framlag hans til íslenskrar menningar. Félagið hefur samstarf við aðra aðila sem á einhvern hátt tengjast eða geta tengst verkum Sturlu Þórðarsonar. Tilgangi sínum hyggst félagið ná með fundum, útgáfustarfsemi, sýningum og öðrum þeim hætti sem er talinn heppilegur til að stuðla að markmiðum félagsins. Þá mun félagið stuðla að stofnun, opnun og starfrækslu minningarreits um Sturlu Þórðarson að Staðarhóli í Dalabyggð.“

    Á stofnfundi félagsins síðastliðið vor var ákveðið að þeir sem verða félagar til áramóta verða taldir stofnfélagar. Þeir sem áhuga hafa á því að verða stofnfélagar eru beðnir um að senda nafn heimilisfang og kennitölu á tölvupóstfangið sturla1214@gmail.com  Tölvupósturinn þarf að berast fyrir áramót.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir