Vorskemmtun í Baðstofunni

Þann 5. maí s.l. var glatt á hjalla í Baðstofunni á Dvalardeild Heilbrigðisstofnunarinnar á Blönduósi en þá komu í heimsókn undir dyggri forystu Héðins Sigurðssonar yfirlæknis þau Sunna Gestsdóttir Sópran, Guðjón Ólafsson fræðslustjóri og Þórhallur Barðason stórsöngvari.

Sungin og leikin voru hin ýmsu lög og tóku sjúklingar og heimilisfólk vel undir í söngnum en einnig var sunginn afmælissöngur fyrir Ingibjörgu Steinþórsdóttur sem var 85 ára þann dag.

Heimsóknir og uppákomur af þessu tagi eru alltaf vel þegnar og krydda lífið og tilveruna á stofnuninni svo um munar.  Listamenn og aðrir einstaklingar í A-Hún. sem tækifæri hafa til að koma með uppákomur og afþreyingu af þessu tagi  eru eindregið hvattir til að gera svo.

/ Sigurlaug Markúsdóttir

Fleiri fréttir