Vortónleikar Tónlistarskóla A-Hún.
Vortónleikar Tónlistaskóla A-Hún eru jafn árvissir og koma lóunnar á vorin en að þessu sinni verða tónleikarnir haldnir dagana 27. – 29. apríl.
Mánudaginn 27. apríl verða þeir á Húnavöllum og hefjast kl. 15:00, þriðjudaginn 28. apríl verða þeir í Hólaneskirkju á Skagaströnd og hefjast kl. 17:00 og miðvikudaginn 29. apríl verða þeir í Blönduósskirkju og hefjast kl. 17:00. Allir velkomnir.
Skólaslit verða 17. maí og verða þau auglýst nánar síðar.
