A-Húnavatnssýsla

Íþróttalýðháskólar í Danmörku – styrkir til náms

Ungmennafélags Íslands styrkir ungt fólk til náms í Lýðháskólum í Danmörku, líkt og undanfarin ár, en UMFÍ hefur gert samning við tíu skóla víðs vegar í Danmörku og er styrkurinn háður því að sótt sé um viðkomandi skó...
Meira

Undirbúa stofnun fiskvinnslu á Blönduósi

Smábátasjómenn á Blönduósi vinna nú að stofnun fiskvinnslu í bænum í samvinnu við fleiri. Jón Örn Stefánsson, umboðsmaður smábátasjómannanna, sagði í samtali við Ríkisútvarpið að eins og er standa fimm aðilar á bak vi
Meira

Áttavillt bréfdúfa á Blönduósi

Bréfdúfa sást á vappi í Urðarbrautinni á Blönduósi í gær en þá sást einnig til bréfdúfu á flugi í bænum sl. laugardagskvöld. Samkvæmt Bréfdúfufélagi Íslands var þessari dúfu líklega sleppt á Akureyri sl. laugardag og
Meira

Lýst eftir pólskum karlmanni

Lögreglan þarf að ná tali af Lukasz Draber og óskar eftir aðstoð almennings.  Þeir sem geta gefið upplýsingar um ferðir hans eða vita hvar hann er staddur eru beðnir um að hafa samband við lögreglu í síma 112.
Meira

Framlag til Norðurlands vestra úr Jöfnunarsjóði sveitarfélaga 428 milljónir

Áætlað framlag úr Jöfnunarsjóði sveitarfélaga vegna þjónustu við fatlað fólk á Norðurlandi vestra á árinu 2012 nemur um 428 milljónum króna. Ögmundur Jónasson innanríkisráðherra hefur samþykkt tillögu ráðgjafarnefndar ...
Meira

Vel heppnuðu Landsmóti STÍ lokið

Landsmót Skotíþróttasambands Íslands í leirdúfuskotfimi (skeet) fór fram á Blönduósi um helgina en samkvæmt facebook-síðu Skotfélagsins Markviss var um vel heppnað mót að ræða. Sigurvegari mótsins var Hákon Þór Svavarsso...
Meira

Ingvi Rafn með þrennu í stórsigri Drangeyinga

Leikmenn Drangeyjar völtuðu yfir lið Ýmis í gærkvöldi en leikið var á Sauðárkróksvelli við ágætar aðstæður. Staðan í hálfleik var 1-0 en Eyjapeyjarnir gerðu sér lítið fyrir og bættu fimm mörkum við í síðari hálfleik...
Meira

Fatamarkaður RKÍ

Austur-Húnavatnsdeild RKÍ verður með fatamarkað í dag, laugardaginn 23. júní, frá kl. 13 - 15. „Fylltu poka af fötum fyrir 1.500 krónur. Ný sending af fatnaði væntanleg. Mikið úrval af leikföngum, púsluspilum, bókum, vhs- spó...
Meira

Föst í Kólumbíu - Markaðsborð á lummudögum

Markaðsborð á lummudögum verður til styrktar hjónunum Bjarnhildi Hrönn Níelsdóttur frá Skagaströnd og Friðriki Kristinssyni frá Sauðárkróki . Þau fóru í desember síðastliðnum til Kólumbíu að sækja tvær litlar stelpur sem...
Meira

Smábæjarleikar hefjast í dag

Smábæjaleikar Hvatar á Blönduósi, sem í ár kallast Smábæjaleikar Arion banka og SAH Afurða og Kjarnafæðis, hefjast í dag laugardaginn 23. júní og standa yfir fram á miðjan dag sunnudag. „Nú er búið að setja þjálfaramöpp...
Meira