Vegna Fjármálaráðstefnu sveitarfélaga verður skrifstofa Húnavatnshrepps lokuð í dag og á morgun en hægt verður að ná í verkstjóra Húnavatnshrepps í síma 894-2344 ef á þarf að halda.
Á hreppsnefndarfundi í Húnavatnshrepp í vikunni var samþykkt að halda breytingum á gjaldskrám í lágmarki auk þess sem athuga á möguleika á því að mötuneytiskostnaður í Húnavallaskóla verið alfarið greiddur af sveitarfélagi...
Heilbrigðisráðuneytið hefur ákveðið að fresta fyrirhugaðri sameiningu heilbrigðisstofnanna á Blönduósi og Sauðárkróki um 6 mánuði en upphaflega var gert ráð fyrir að stofnanirnar tvær yrðu sameinaðar um áramót.
Framkvæm...
Veðurspáin gerir ráð fyrir norðaustan 5-13 m/s og rigning eða slyddu í fyrstu, en síðan él. Heldur hægari í nótt og á morgun. Hiti í kringum frostmark.
Rauðakrossdeild Austur Húnavatnssýslu ætlar að verða með fatamarkað laugardaginn 15. nóvember í húsnæði deildarinnar að Húnabraut 13 á Blönduósi.
Opið verður á milli kl. 14:00 til 17:00. Eingöngu verður fatnaður á börn
Á Húnahorninu er sagt frá því að meðalökuhraðinn á þjóðvegum landsins hefur lækkað verulega á fjórum árum, samkvæmt könnun Vegagerðarinnar. Frá árinu 2004 hefur til dæmis meðalökuhraðinn við Hvassafell í Norðurárdal ...
Elstu börnin á Leikskólanum Barnabæ á Blönduósi fengu sér göngutúr um daginn og kíktu í heimsókn í VILKO.
Þar fengu þau að skoða tækin og aðstöðuna og fannst þeim þetta allt mjög merkilegt. Þau voru þau fyrstu sem heims...
Nú sem fyrr verða jólasveinarnir með heimboð í Dimmuborgir í Mývatnssveit, 22. nóvember á milla 15:00 og 15:30. Verða sveinarnir þrettán þar allir og aldrei er að vita upp á hverju þeir geta tekið enda orðlagðir fyrir að vera...
Það eru ekki mikil læti í veðrinu svona í morgunsárið og gerir spáin ráð fyrir suðaustan 3 - 8 m/s og skýjuðu með köflum í dag. Í kvöld er gert ráð fyrir að hann snúi sér í norðaustan 8 - 10 og dálítla snjókomu í nót...
Nú í morgun afhenti Jón F Hjartarson skólameistari FNV þremur nemendum skólans viðurkenningu fyrir frammistöðu þeirra í stærðfræðikeppni framhaldsskólanema sem haldin var nýlega.
Það voru þeir Hannes Geir Árdal Tómasson, T
Landsfundur Sjálfsbjargar – landssambands hreyfihamlaðra, var haldinn í sal Sjálfsbjargar í Hátúni í Reykjavík, dagana 24. - 25. apríl. Landsfundurinn sendi frá sér ályktun þar sem segir: „Í aðdraganda sveitarstjórnarkosninga hvetur landsfundur Sjálfsbjargar landssamband hreyfihamlaðra öll sveitarfélög til að gera úrbætur í aðgengismálum og fullnýta það fjármagn sem í boði er frá ríkinu til slíkra verkefna.“
Frá því 2001 hafa sveitarfélögin átt kost á veglegum styrkjum frá ríkinu til úrbóta í aðgengismálum. Þrátt fyrir háværa umræðu um vanfjármögnun í málaflokki fatlaðs fólks fóru tæpar 120 milljónir króna forgörðum á árunum 2021-2024. Eftirspurnin eftir styrkjunum var of lítil.
Nýlega birtist veiðiráðgjöf Hafró á hrefnu og langreyð en það var búið að dragast að gefa hana út sem er illskiljanlegt þar sem hún byggir á gögnum frá árinu 2024. Í stuttu máli þá felur veiðiráðgjöfin fyrir árið 2026 það í sér að ráðlegt er að draga verulega úr veiðum á bæði hrefnu og langreyð.
Herra Hundfúll er pínu leiður – semsagt kannski ekki alveg hundfúll – yfir því að Vísnakeppni Safnahúss Skagfirðinga hafi fallið niður þessa Sæluvikuna. Það er Safnahúsið sem stendur fyrir keppninni en það þarf alltaf að finna einhvern sem hefur umsjón með henni. Því miður fannst enginn að þessu sinni sem var tilbúinn til að taka við keflinu.
Að þessu sinni er það Gunnar Lárus Hjálmarsson úr Reykjavíkurhreppi, betur þekktur sem Dr. Gunni, sem tekst á við Tón-lystina. Doktorinn spilar á gítar, bassa og ukulele en til helstu tónlistarafreka sinna telur hann Prumpulagið og Glaðasta hund í heimi og að hafa verið í hljómsveitunum S.H. Draumur og Unun og reyndar ýmislegt fleira. Gunni er alinn upp í Kópavogi en hver er þá tenging hans norður? „Pabbi er frá Skagafirði, bjó í Bakkakoti í Lýtingsstaðarhreppi. Við systkinin höfum tvisvar á síðustu tveimur árum farið á æskuslóðirnar með gamla með. Ég fíla Skagafjörð í botn. Reyni að komast þangað á hverju sumri og á enn eftir að fara upp á Mælifellshnjúk í almennilegu skyggni. Þegar ég fór upp sást ekki neitt fyrir þoku,“ segir hann