Syngur bara alls ekki í sturtu / SIGGI DODDI

Siggi Doddi, annar frá hægri, ásamt félögum sínum í Von.
Siggi Doddi, annar frá hægri, ásamt félögum sínum í Von.

Sigurpáll Aðalsteinsson, í daglegu tali nefndur Siggi Doddi, svarar nú Tón-lystinni. Siggi Doddi (1970) býr í Fellstúninu á Króknum en er alinn upp á Húsavík. Hann spilar á hljómborð og oftar en ekki með hljómsveitinni Von. Þá er kappinn í landsliðsflokki í veitinga- og skemmtanabransanum en Siggi Doddi rekur ásamt konu sinni, Stínu Magg, veitinga- og skemmtistaði á Króknum og á Akureyri.

Helstu tónlistarafrek? Að fá að spila ball með Stjána Gísla.

Uppáhalds tónlistartímabil? 1980 til 1990.

Hvaða tónlist fær þig til að sperra eyrun þessa dagana? íslensk tónlist.

Hvers konar tónlist var hlustað á á þínu heimili? Allt með Bo. Frú Unnur (mamma) keypti allt sem Bo gaf út.

Hver var fyrsta platan/diskurinn/kasettan/niðurhalið sem þú keyptir þér? Held að það hafi verið plata með Rut Reginalds ekki man ég nú nafnið á henni.

Hvaða græjur varstu þá með? -Gamlar Sharp.

Hvað syngur þú helst í sturtunni? -Syng bara alls ekki í sturtu.

Hvaða lag getur eyðilagt fyrir þér daginn? -Glaðasti hundur í heimi.

Uppáhalds Júróvisjónlagið? -Waterloo og Eitt lag enn eftir Bassa vin minn.

Þú heldur dúndurpartí í kvöld, hvað læturðu hljóma í græjunum til að koma öllum í stuð? -Sálina og jafnvel Stjórnina. Þegar mundi líða á þá kæmi Bon Jovi sterkur inn.

Þú vaknar í rólegheitum á sunnudagsmorgni, hvað viltu helst heyra? -Vakna sjaldan snemma á sunnudagsmorgni, en yfirleitt sönglar í eyrunum á mér það sem ég var að spila um nóttina.

Þú átt þess kost að fara hvert sem er í heiminum og skella þér á tónleika. Hvert færirðu, á hvaða tónleika og hvern tækirðu með þér? -Ég myndi taka Kristínu með mér að sjálfsögðu – veit ekki hvert, bara þar sem Bon Jovi væri með tónleika.

Hvaða tónlistarmaður hefur þig dreymt um að vera? -Stebbi Hilmars.

Hver er að þínu mati besta plata sem gefin hefur verið út? -Í bítið með Von.

 Sex vinsælustu lögin á Playlistanum þínum? -Ég læt Spotify sjá um að setja saman playlista fyrir mig svo listinn er mismunandi eftir dögum og tilefnum.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir