A-Húnavatnssýsla

Frumkvöðlasjóður auglýsir eftir umsóknum

Íslandsbanki auglýsir eftir umsóknum í Frumkvöðlasjóð Íslandsbanka en hann styrkir frumkvöðlaverkefni sem leggja áherslu á endurnýjanlegrar orku og sjálfbærs sjávarútvegs.
Meira

Aðalfundur Landsbyggðin Lifi

Aðalfundur Landsbyggðin Lifi – LBL verður haldinn laugardaginn 10. október 2015, klukkan 13:30 í húsnæði Skjálftasetursins (skólahúsinu) á Kópaskeri. Landsbyggðin lifi - LBL, er hreyfing fólks á Íslandi sem vill örva og efla byggð um land allt. Samtökin eru regnhlífarsamtök félaga og einstaklinga sem áhuga hafa á landsbyggðamálum.
Meira

Ný brú komin yfir Vatnsdalsá

Samkvæmt vef Vegagerðarinnar hefur brúarvinnuflokkur Vegagerðarinnar nú lokið við að byggja bráðbirgðabrú yfir Vatnsdalsá við Grímstungu en um er að ræða 45 m langa stálbitabrú. Gamla brúin féll undan efnisflutningabíl í síðasta mánuði.
Meira

Húnabjörg kölluð út tvisvar sama daginn

Húnabjörg, björgunarskip Landsbjargar á Skagaströnd, var í tvígang kallað út sl. þriðjudag. Fyrr um daginn var skipið kalla út vegna elds um borð í skipi norður af Sauðanesi en skjótt náðist að loka rýmum sem eldurinn kom upp í og setja af stað slökkvikerfi. Var þá Húnabjörgin afturkölluð.
Meira

Landsbyggðargleraugun og þjóðarkakan

Fjárlögin liggja nú fyrir, fyrsta umræða hefur farið fram og frumvarpið komið til fjárlaganefndar. Nú þegar afrakstur erfiðra aðgerða sem gerðar voru vegna efnahagshrunsins er að skila ríkissjóði góðum tekjuafgangi mætti ætla að fjárlögin bæru þess vitni og veruleg innspýting væri í málaflokka sem höfðu tekið á sig skerðingar og nú væri komið að því að setja verulega fjármuni í innviðauppbyggingu samfélagsins.
Meira

Kótilettukvöld á Blönduósi

Frjálsa kótilettufélagið í Austur-Húnavatnssýslu, sem telur 82 félagsmenn, ætlar að standa fyrir kótilettukvöldi á Pottinum á Blönduósi laugardaginn 26. september. Fjögur slík kvöld voru haldin síðasta vetur og að sögn forsprakka þeirra, Valdimars Guðmannssonar, fór mætingin vaxandi og nálgaðist fimmtíu manns síðasta kvöldið.
Meira

Málþing um Jóhönnu Jóhannesdóttur frá Svínavatni

Málþing um Jóhönnu Jóhannesdóttur frá Svínavatni verður haldið í Kvennaskólanum á Blönduósi sunndaginn 27. september og hefst kl. 14:00. Málþingsstjóri er Jóhanna E. Pálmadóttir, framkvæmdastjóri Textílseturs Íslands.
Meira

Snjólaug er Skyttan 2015

Laugardaginn 12. september var Kvennamótið Skyttan haldið á Blönduósi í blíðskapar veðri og frábærum félagsskap. Átta konur frá Akureyri, Hafnarfirði, Reykjavík og Blönduósi mættu til leiks og háðu keppni um Nýliðann 2015 og Skyttuna 2015.
Meira

Viljayfirlýsing um rekstur náttúrustofu

Fjögur sveitarfélög á Norðurlandi vestra hafa samþykkt viljayfirlýsingu um rekstur Náttúrustofu Norðurlands vestra, en starfsemi hennar hefur legið niðri undanfarin misseri. Samþykktir Húnaþings vestra og Skagastrandar voru gerðar með því skilyrði að hluti starfseminnar yrði í þeim sveitarfélögum.
Meira

Vill að komið verði til móts við óskir heimamanna

Kerfisáætlun Landsnets 2015 til 2024 var til umfjöllunar á fundi byggðarráðs Sveitarfélagsins Skagafjarðar sl. miðvikudag. Í kerfisáætluninni er gert ráð fyrir tveimur framkvæmdum á umræddu tímabili í sveitarfélaginu, Blöndulínu 3, 220 kV lína frá Blöndu til Akureyrar og ný 66 kV lína frá tengivirkinu í Varmahlíð á Sauðárkrók. Eru báðar þessar framkvæmdir á áætlun árið 2018.
Meira