„Betri vinnutími“

Mikil umskipti hafa orðið til hins betra á mörgum vinnustöðum með styttingu vinnuvikunnar. Þannig hafa verið stigin stór skref í að gera íslenskt samfélag fjölskylduvænna. Fólki hefur verið gert kleift að njóta í meira mæli samveru með fjölskyldu og vinum. Stytting vinnuvikunnar felur sannarlega í sér aukin lífsgæði. Síðustu ár hefur stytting vinnuvikunnar komið í ríkari mæli inn í kjarasamninga og þá um leið án þess að laun skerðist á móti og er það vel.

Mikilvægt er þó að gæta að því að mismunandi útfærslur henta eftir vinnustöðum. Á sumum vinnustöðum er tiltölulega einfalt að fækka vinnustundum án viðbótarkostnaðar eða fleiri starfsmanna, svo sem í ýmsum skrifstofu- og þjónustustörfum. Það er vandasamara, svo sem þar sem um er að ræða vaktavinnu eða störf í leik- og grunnskólum og getur falið það í sér að bæta þurfi við starfsfólki, en er sannarlega þess virði fyrir alla þegar vel tekst til. Þannig verða vinnustaðirnir betri bæði fyrir börn og starfsfólk. Öll viljum við vera á góðum vinnustað þar sem okkur líður vel og þar sem er einnig er svigrúm til að geta notið fleiri stunda með ástvinum okkar.

Það hefur víða verið vandi að fá fólk til starfa á leikskólum, ekki síður í grunnskólum landsins og njóta þeirra starfskrafta og reynslu til lengri tíma. Með styttri vinnuviku fækkar veikindadögum og fleiri geta sótt heilbrigðisþjónustu og aðra þjónustu í vinnustyttingu án þess að taka til þess frí frá vinnu. Með styttingu vinnuvikunnar er vinnustaðurinn og starfsumhverfið einmitt gert enn frekar aðlaðandi og starfsmannavelta minnkar. Með öðrum orðum, fleiri vilja eyða stærri hluta starfsævinnar á þeim vinnustað.

Sveitarfélagið Skagafjörður var á meðal þeirra fyrstu sem tóku slík skref með innleiðingu styttingar vinnuvikunnar. Ekki síst fyrir frumkvæði Vinstri grænna og óháðra í Sveitarstjórn Skagafjarðar, sem gerðu styttingu vinnuvikunnar að einu sínu stærsta kosningamáli í sveitarstjórnarkosningunum árið 2018. Góð samstaða náðist síðan í sveitarstjórninni um að stíga skref til styttingar vinnuvikunnar. Almennt fór það verkefni vel á stað og hnökrar sem upp komu í upphafi, svo sem vegna undir mönnunar voru leystir. Ávinningur sveitarfélagsins af styttingu vinnuvikunnar hefur verið að auðveldara er að fá starfsfólk, sem aukinheldur er líklegra til að horfa á það starf sem sinn framtíðar vinnustað.

Á mörgum vinnustöðum er enn verið að finna bestu útfærsluna til styttingar vinnuvikunnar, á öðrum er að verða til farsæl reynsla sem vert er að fleiri horfi til. Stytting vinnuvikunnar er sannarlega að sanna sig sem góð leið til að auka ánægju meðal starfsfólks, sem bæði verða fyrir vikið betri starfsmenn og njóta betra lífs með fjölskyldum sínum og vinum. Það er allra hagur.

Bjarni Jónsson
Höfundur er þingmaður Vinstri grænna í NV kjördæmi

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir