Jólalögin best beint frá hjartanu / HILDUR EIR

Í þessari jólaútgáfu af Tón-lystinni er það brottfluttur Skagfirðingur, Hildur Eir Bolladóttir, sóknarprestur við Akureyrarkirkju, sem situr fyrir svörum. Hildur Eir, fædd 1978, ólst upp í Laufási við Eyjafjörð til 13 ára aldurs en bjó á Hólum í Hjaltadal þangað til hún fór 16 ára gömul í Menntaskólann á Akureyri. Hún er dóttir heiðurshjónanna Bolla Gústavssonar og Matthildar Jónsdóttur en Bolli var vígslubiskup á Hólum frá 1991 til 2002.

Hildur Eir lærði á fiðlu, orgel og gítar sem barn, lengst þó á fiðlu, en um helstu tónlistarafrek sín segir hún: -Það var visst afrek að hafa ekki gert fjölskyldu mína vitstola af fiðluleiknum en annars er nýjasta tónlistarafrekið það að hafa stofnað prestatríó með séra Oddi Bjarna og séra Hannesi Blandon, við tróðum upp á Handverkshátíðinni á Hrafnagili í ágúst síðastliðnum.

Uppáhalds tónlistartímabil? -Ég er svolítið svag fyrir tímabilinu 1970 til 90, bæði hér heima og erlendis. Annars man ég oft ekkert síðan hvenær lög eru, ég er jafn léleg að aldursgreina lög og manneskjur, ég hrífst bara af hvoru tveggja

Hvaða tónlist fær þig til að sperra eyrun þessa dagana? -Í ræktinni finnst mér mjög gaman að hlusta á Prins póló, í kirkjunni finnst mér dásamlegt að hlusta á gömlu sálmana og forspil og eftirspil ala Bach, í bílnum hlusta ég á  Kaleo, í stofunni hlusta ég á Hymnodiu. Við skriftir hlusta ég á Tom Waits og stundum Pixies. Ég er mjög þversagnakenndur og óstíliseraður karakter.  

Hvers konar tónlist var hlustað á á þínu heimili? -Klassík, Joan Sutherland, Jussi Björling, Smárakvartettinn (afi Gústi söng með honum), Pavarotti, Placido Domingo, Maria Callas og Bing Crosby þegar við tókum laufabrauð – þar kom „rokkarinn“ fram í pabba.

Hver var fyrsta platan sem þú keyptir þér? -Sko, fyrsta platan sem ég eignaðist var Dýrin í Hálsaskógi og ég hlustaði á hana aftur og aftur og aftur. Fyrsta platan sem ég keypti mér var The Wall með Pink Floyd en fyrsta bandið sem ég elskaði var Dire Straits, þvílíkir meistarar.

Hvaða græjur varstu þá með? -Ég átti kassettutæki en í stofunni heima var ágætur plötuspilari sem við systkinin hertókum þegar foreldrar okkar brugðu sér af bæ. Pabbi var ekki mikið fyrir graðhestatónlist en hann var samt alveg sáttur við Pink Floyd, það er líka svolítið klassískur undirtónn í þeirra tónlist.

Besta lagið til að hlusta á á hlaupum? -Á hlaupum er það Michael Jackson, Bad er grjóthart lag ef maður vill hlaupa með smá attitjúti sem virkar örugglega  ótrúlega kjánalega á þá sem mæta manni eða keyra framhjá.

Hvaða lag getur eyðilagt fyrir þér daginn? -Göngum við í kringum einiberjarunn gat hæglega eyðilagt fyrir mér daginn þegar ég var barn en nú þarf svo mikið til að eyðileggja fyrir mér daginn að ég hugsa að þó ég yrði læst upp í kirkjuturni með heyrnartól á eyrunum og þyrfti að hlusta á Anaconda á repeat í 12 klukkutíma, þá myndi ég samt halda áfram að trúa á Guð, svei mér þá. Ef ég þyrfti hins vegar að horfa á myndbandið í jafn langan tíma þá myndi ég gerast heiðin.

Hvenær má byrja að spila jólalögin? -Bara þegar fólk er farið að fá jólafiðringinn.   

Uppáhalds jólalagið? -Sálmarnir Sjá himins opnast hlið og Heims um ból og Christmas Song (Chestnuts roasting on an open fire) og Driving Home For Christmas með Chris Rea. Jóladiskurinn með Hymnodiu sem heitir Þar ljós inn skein er alveg dásamlegur.

Hvert er fyrsta jólalagið sem þú manst eftir að hafa heyrt? -Heims um ból í messu heima í Laufási.

Hvernig eru jólalögin best? -Eins og önnur lög eru þau best þegar þau eru flutt beint frá hjartanu án þess að hafa of mikla viðkomu við heilann.

Þú vaknar í rólegheitum á sunnudagsmorgni, hvað viltu helst heyra? -Þá getur verið mjög gott að heyra fallegan sálmasöng í útvarpsmessunni, það er eitthvað svo ekta.

Þú átt þess kost að fara hvert sem er í heiminum og skella þér á tónleika. Hvert færirðu, á hvaða tónleika og hvern tækirðu með þér? -Ég færi nú bara til Brasilíu og sæi svo til hvort ég fyndi ekki einhvern skemmtilegan salsaklúbb og byði manninum mínum með svo við gætum rifjað upp gamla takta.

Hvaða tónlistarmaður hefur þig dreymt um að vera? -Aldrei dreymt um að vera einhver annar en ég er, nóg er nú víst álagið að kynnast sjálfum sér að maður fari ekki að skipta um hest í miðri á.

Er einhver sérstök tónlist eða lag sem þú tengir við Hóla? -Fyrir utan lagið Undir bláhimni þá myndi það vera tónlist sveitarinnar REM sem við Laufey Jónsdóttir Bjarnasonar, fyrrum skólameistara á Hólum, hlustuðum mikið á þegar við vorum nemendur í Varmahlíðarskóla. Við höfðum þetta svona sem stef í ástarsorg, von og þrá.

Hver er að þínu mati besta plata sem gefin hefur verið út? -Þetta er pottþétt erfiðasta viðtal sem ég hef farið í um ævina, viltu ekki bara líka spyrja hvernig heimurinn varð til?

Hvenær eru jólin komin? Þegar aftansöngurinn hefst klukkan 18:00 á aðfangadag.

Sex vinsælustu lögin á Playlistanum. -Ég man aldrei hvað lög heita  en ég man hvernig mér líður þegar ég hlusta á þau. Tónlist er sálarnudd, stundum slökunar, stundum svæða og stundum sjúkranudd ;o) 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir