Hólaneskirkja á Skagaströnd fékk fallega gjöf

Séra Margrét Rut og Birgir Már við brúðuleikhúsið.  MYND AF FACEBOOK
Séra Margrét Rut og Birgir Már við brúðuleikhúsið. MYND AF FACEBOOK

Í skilaboðum á Facebook-síðu Hólaneskirkju á Skagaströnd er sagt frá því að Birgir Már Friðriksson hafi komið færandi hendi í sunnudagaskólann í kirkjunni síðastliðinn sunnudagsmorgun.

Hann hafði smíðað brúðuleikhúsið og Arnrún Hildur Hrólfsdóttir skreytti. Minningarsjóðurinn um hjónin frá Garði og Vindhæli styrkti þetta skemmti-lega verkefni.

Hólaneskirkja þakkar þeim öllum fyrir þessa frá-bæru gjöf og fram kemur í skilaboðunum að börn-unum í sunnudagaskólanum hafi litist mjög vel á brúðuleikhúsið.

Fleiri fréttir