Haustþing SSNV samþykkti sjö ályktanir um hagsmunamál landshlutans
Tíunda haustþing Samtaka sveitarfélaga á Norðurlandi vestra (SSNV) var haldið á Hótel Laugarbakka í Húnaþingi vestra fimmtudaginn 1. október. Á heimasíðu SSNV segir að á þinginu voru samþykktar sjö ályktanir um málefni landshlutans, fjárhags- og starfsáætlun samtakanna fyrir árið 2027 og breytingar á samþykktum SSNV. Mæting þingfulltrúa var 88%.
Sjö ályktanir
Ályktanirnar snerta samgöngur, skattlagningu, fjármögnun lögbundinnar þjónustu og stöðu landsbyggðarinnar:
- Kílómetragjald og eldsneytisskattar. Þingið mótmælir hækkun kílómetragjalds og eldsneytisskatta, sem leggjast þyngra á íbúa landsbyggðarinnar en þéttbýlis. Þingið krefst þess að tekjur af gjaldtöku á umferð skili sér í viðhald vega, vetrarþjónustu og umferðaröryggi.
- Samgöngu- og innviðamál. Þingið fagnar samþykkt samgönguáætlunar 2026–2040. Það krefst þó aukins fjármagns til viðhalds vega, vetrarþjónustu, farsímasambands í dreifbýli og hafnarframkvæmda, og að Norðurland vestra verði forgangssvæði við uppbyggingu flutningskerfis raforku.
- Breytingar á kosningalögum. Þingið lýsir eindreginni andstöðu við tillögur um að fækka þingmönnum Norðvesturkjördæmis úr sjö í sex.
- Framlög til landshlutasamtaka. Þingið mótmælir fyrirhugaðri skerðingu á framlögum ríkisins til sóknaráætlana og atvinnuþróunar á vegum landshlutasamtaka sveitarfélaga.
- Farsæld barna og málefni fatlaðs fólks. Þingið krefst þess að ríkið tryggi fullnægjandi fjármagn til farsældarþjónustu í þágu barna og til málaflokks fatlaðs fólks, svo sveitarfélögum sé ekki gert að veita lögbundna þjónustu án þess að kostnaði sé mætt.
- Ferðaþjónusta. Þingið lýsir áhyggjum af auknum álögum á ferðaþjónustu, meðal annars hækkun virðisaukaskatts á baðlón og innviðagjaldi á skemmtiferðaskip. Þá mótmælir þingið áformum um að fella niður framlag til Flugþróunarsjóðs, sem styður millilandaflug um Akureyrarflugvöll.
- Endurgreiðsla virðisaukaskatts. Þingið skorar á ríkisstjórn og Alþingi að lögfesta fulla og varanlega endurgreiðslu virðisaukaskatts vegna húsnæðis sem hýsir lögbundna þjónustu sveitarfélaga, svo sem leik- og grunnskóla.
Ályktununum er beint til viðkomandi ráðuneyta og nefnda Alþingis. Þær má lesa í heild sinni hér.
Þingið samþykkti einnig að endurskipa samgöngu- og innviðanefnd SSNV, með einum fulltrúa frá hverju sveitarfélagi. Nefndin á að yfirfara samgöngu- og innviðaáætlun Norðurlands vestra og leggja uppfærða áætlun fyrir ársþing SSNV 2027.
Heimild og sjá nánar: SSNV.is >
