1-1-2 dagurinn í Húnaþingi vestra
Eins og einhverjir hafa tekið eftir þá er 112 dagurinn nk. sunnudag, 11. febrúar, og verður dagurinn haldinn hátíðlegur um allt land. Af því tilefni ætla viðbragðsaðilar í Húnaþingi vestra að efna til hópaksturs um Hvammstanga. Allir fá að fara með í bílana meðan pláss leyfir og verður lagt af stað í hópaksturinn frá Húnabúð - slökkvistöð kl. 16:00.
Áætlað er að enda hópaksturinn á sama stað og þar verður hægt að fá að skoða tækin. Endilega komið með eða kíkið við og samfagnið deginum með viðbragðsaðilum Húnaþings vestra.
Björgunarsveitin Húnar
Lögreglan á Hvammstanga
Brunavarnir Húnaþings vestra
Sjúkraflutningar HVE