Innanríkisráðuneytið hefur komist að þeirri niðurstöðu að tveir þáverandi sveitastjórnarmenn þeir Valgarður Hilmarsson og Jón Aðalsteinn Snæbjörnsson hafi verið vanhæfi samkvæmt sveitastjórnarlögum til að taka ákvörðun um að hafna öllum tilboðum í 2. áfanga sundlaugarbyggingar á Blönduósi og því hafi ákvörðunin verið ólögmæt.

Krákur ehf á Blönduósi hafði kært ákvörðun þáverandi bæjarstjórnar sem hafnaði tveimur tilboðum í 2 áfanga byggingar sundlaugarinnar á Blönduósi þar sem bæði tilboðin voru yfir kostnaðaráætlun en fyrirtækin Krákur og Stígandi buðu í verkið.

Þrátt fyrir að ráðuneytið hafi komist að þeirri niðurstöðu að ákvörðun bæjarstjórnar hafi ekki verið lögmæt telur ráðuneytið að ekki standi efni til ógildingar ákvörðunarinnar vegna þess að framkvæmdum við sundlaugina sé nú lokið.

Úrskurðinn í heild sinni má lesa hér.

Fleiri fréttir