100 ára byggingarafmæli Kvennaskólans á Blönduósi

Í tilefni 100 ára afmælis Kvennaskólans á Blönduósi verður efnt til afmælishófs mánudaginn 12. nóvember kl. 13:30. Gestum verður boðið að skoða Kvennaskólann og þiggja léttar veitingar að dagskrá lokinni. Um leið verður Þekkingarsetrið á Blönduósi formlega opnað í Kvennaskólanum. Allir eru velkomnir.

Dagskrá:

•          Ávarp mennta-og menningarmálaráðherra

•          Guðrún Jónsdóttir, arkitekt

•          Iðunn Vignisdóttir, sagnfræðingur

•          Aðalbjörg Ingvarsdóttir, Vinir Kvennaskólans

•          Katharina Schneider, framkvæmdastjóri Þekkingarsetursins

•          Undirritun samstarfssamnings milli mennta-og menningarmálaráðuneytisins við Þekkingarsetrið á Blönduósi

•          Þekkingarsetrið á Blönduósi formlega opnað

Fleiri fréttir