112-dagurinn á Skagaströnd

Björgunarsveitin Strönd, Skagastrandardeild RKÍ og Slökkvilið Skagastrandar verður með opið hús að tilefni 112-deginum sem haldinn verður á landsvísu á morgun, laugardaginn 11. febrúar. Markmið dagsins er að kynna neyðarnúmerið og þá margvíslegu aðstoð sem almenningur hefur aðgang að í gegnum það. Að þessu sinni er áhersla lögð á að hvetja fólk til að hika ekki heldur hringja í 112 ef það telur sig þurfa á aðstoð að halda – til öryggis.

„Hvernig er að vera slökkviliðsmaður?  Viltu prófa að fara í slökkviliðsgalla?  Hvað er hjartahnoð?  Hvernig er klifurbúnaður notaður?  Hvað er TETRA?  Svör við þessum spurningum og mörgum fleiri getur þú fengið ef þú lítur við á laugardaginn hjá okkur og kynnist því sem þessir aðilar eru að fást við í sínu starfi,“ segir á heimasíðu björgunarsveitarinnar Strönd.

Hægt verður að skoða tæki og búnað frá björgunarsveitinni, sjúkrabíl RKÍ  og bíl slökkviliðsins á Skagaströnd í Bjarnabúð, húsi björgunarsveitarinnar frá kl. 14 - 16.

Boðið verður upp á kaffi, vöfflur og djús fyrir þá yngri.

 

 

Fleiri fréttir