112 dagurinn í Húnaþingi vestra og á Blönduósi

Á morgun, laugardaginn 11. febrúar, er 112 dagurinn. Á Blönduósi og Hvammstanga verða viðbragðsaðilar með dagskrá í tilefni dagsins.
Á Hvammstanga munu viðbragðsaðilar í Húnaþingi vestra bjóða öllum sem þess óska með í hópakstur um Hvammstanga meðan pláss leyfir og verður lagt af stað frá Húnabúð kl. 14:00. Að því loknu verður ný slökkvibifreið Brunavarna Húnaþings vestra afhent formlega og á eftir verða veitingar í boði á Slökkvistöðinni þar sem gestum gefst tækifæri til að skoða búnað og tæki allra viðbragðsaðila og kynna sér þá starfsemi sem þar fer fram.
Á Blönduósi verður opið hús í húsnæði Björgunarfélagsins Blöndu frá kl. 13:00-15:00. Dagurinn verður með svipuðu fyrirkomulagi og undanfarin ár, en eftir akstur allra viðbragðsaðila um bæinn, ætla þeir að staðnæmast við húsnæði björgunarfélagsins og þar verður hægt að skoða bílaflotann.
Veitingar verða í boði fyrir gesti og gangandi.
Viðbragðsaðilar hvetja alla til að koma og skoða búnað þeirra og þiggja fræðslu um starfsemi þeirra.