12 stunda skyndihjálparnámskeið á Blönduósi
Skyndihjálparnámskeið verður haldið á Blönduósi 12. - 13. maí næstkomandi, ef næg þátttaka fæst. Námskeiðið er ætlað öllum þeim sem vilja læra skyndihjálp og endurlífgun og öðlast öryggi, færni og þekkingu í að veita nærstöddum aðstoð í bráðatilfellum með því að beita á öruggan hátt einföldum aðferðum í skyndihjálp.
Námskeiðið er 12 klukkustundir (16 kennslustundir) og er metið til eininga í flestum framhaldsskólum, til aukinna ökuréttinda og víðar. Til öryggis er þeim sem þurfa skyndihjálparþekkingu sem hluta af starfsréttindum eða námi ráðlagt að leita staðfestingar hjá viðkomandi menntastofnun hvort námskeiðið sé tekið gilt.
Allar nánari upplýsingar um námskeiðið má fá í síma 6917256 og á heimasíðu RKÍ; www.rki.is.
/ RKÍ A-Húnavatnssýsludeild