1238 – Baráttan um Ísland opnar gestasýningu í Víkingaheimum, Reykjanesbæ

Freyja Rut Emilsdóttir og Þórður Grétar Árnason frá 1238 ásamt Paulinu Gunnlaugsson Fricova  og Johannesi Gunnlaugssyni Fric, frá Víkingaheimum við opnun sýningarinnar.
Freyja Rut Emilsdóttir og Þórður Grétar Árnason frá 1238 ásamt Paulinu Gunnlaugsson Fricova og Johannesi Gunnlaugssyni Fric, frá Víkingaheimum við opnun sýningarinnar.

Það er okkur sönn ánægja að tilkynna að í dag opnar gestasýning 1238 í Víkingaheimum, Reykjanesbæ. Það er skemmtileg tilviljun að það gerist í dag, þegar þrjú viðburðarík ár eru liðin frá því að sýningin opnaði á Sauðárkróki.

Víkingaheimar hýsa víkingaskipið Íslending en einnig eru þar spennandi sýningar sem fjalla m.a. um siglingar og landnám víkinga í Norður-Ameríku, fornleifar á Suðurnesjum, norræna goðafræði og kynning á helstu söguslóðum Íslands auk þess sem á útisvæði í nánasta umhverfi er starfræktur landsnámsdýragarður á sumrin.

Á sýningu 1238 mun verða hægt að kynna sér stuttlega sögu Sturlungaaldarinnar áður en gestum er boðið að beinlínis stíga inn í söguna og taka þátt í Örlygsstaðabardaga í sýndarveruleika.

Fleiri fréttir