1.278 km af reiðleiðum í Húnaþingi
Í kortasjá á vegum Landssambands hestamannafélaga hafa nú bæst við 1.278 kílómetrar af reiðleiðum í Húnavatnssýslum.
Á Húna.is segir að í kortasjánni séu nú alls skráðir 6.864 kílómetrar af reiðleiðum á Suðurlandi, Vesturlandi og í Húnavatnssýslum. Næst verður farið í skráningu á reiðleiðum í Skagafjarðar- og Eyjafjarðarsýslum og er ráðgert að þær verði komnar inn fyrir áramót.
Allar ábendingar um hvað eina sem betur má fara við skráninguna eru vel þegnar og sendist á Halldór H. Halldórsson á netfangið:bilamalunh@simnet.is eða á Sæmund Eiríksson: klopp@simnet.is