132 þorskígildistonn á Blönduós
Blönduósbær sótti um byggðakvóta til Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytisins vegna fiskveiðiársins 2011/2012 og hefur ráðuneytið fjallað um umsóknina eftir því sem fram kom á fundi bæjarráðs sl. mánudag og fær Blönduósbær úthlutað 132 þorskígildistonnum.
Í bréf frá Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytinu segir að vilji sveitarstjórn leggja til við ráðuneytið að sett verði sérstök skilyrði varðandi úthlutun byggðakvóta sveitarfélagsins eða einstakra byggðalaga skal hún skila rökstuddum tillögum eigi síðar en 20. janúar 2012.
Formanni bæjarráðs var falið að vinna frekar að málinu.