17. júní á Blönduósi
Undirbúningur 17. júní hátíðarhalda á Blönduósi er í fullum gangi. Umsjón með hátíðarhöldunum hefur Hestamannafélagið Neisti. Að venju verður boðið upp á ýmislegt til skemmtunar og afþreyingar. Hægt verður að fara á hestbak í Reiðhöllinni, fara í útsýnisflug og taka þátt í dorgveiðikeppni.
Hefðbundin skrúðganga fer frá SAH-Afurðum klukkan 13:30 og síðan verður dagskrá á plani Félagsheimilisins með hugvekju, fjallkonu, tónlist og hátíðarræðu svo eitthvað sé nefnt.
Að venju verða leikir fyrir börn og unglinga. Vöfflukaffið sívinsæla er á sínum stað og ætti enginn að þurfa að vera svangur.
Dagskrá hátíðarhalda á Blönduósi 17. júní næstkomandi:
Kl. 8:00
Fánar dregnir að hún.
Kl. 10:00 -11:00
Börnum boðið á hestbak í Reiðhöllinni Arnargerði.
Kl. 11:00
Guðsþjónusta í Blönduósskirkju
Kl. 11:00 -12:00
Dorgveiðikeppni á bryggjunni (þátttakendur eru á eigin ábyrgð og eiga að vera í björgunarvestum).
Kl. 12:30 -13:30
Andlitsmálun fyrir utan SAH afurðir helíumblöðrur og annað sem tilheyrir verður til sölu (ekki tekið við greiðslukortum)
Kl. 13:30
Skrúðganga frá SAH Afurðum á Bæjartorg
Á Bæjartorgi verður hátíðardagskrá;
Hugvekja - Séra Sveinbjörn Einarsson
Fjallkonan
Hátíðarræða - Lárus Ægir Guðmundsson
Tónlist
Leikir fyrir börn á Þríhyrnutúni
Kl. 14:30 -16:30
Kaffisala í Félagsheimilinu, vöfflukaffi (ekki tekið við greiðslukortum)
Útsýnisflug
Útsýnisflug frá Blönduósflugvelli að hætti Magnúsar og Kristmundar ef veður leyfir. Sunnudaginn 16. júní frá klukkan 13:00 og eitthvað fram á daginn. Mánudaginn 17. júní frá klukkan 10:00 og fram eftir degi eftir þörfum. Æskilegt að þrír séu í hóp. Gjald 1.500 krónur fyrir stutt flug en 2.000 krónur fyrir lengra flug (ekki tekið við greiðslukortum). Skráning í flugskýlinu eða í síma 898 5695.
Sund
Sundlaugin verður opin frá 10:00 – 16:00.